Þegar öllu er á botninn hvolft Ingólfur Sverrisson skrifar 28. ágúst 2025 14:32 Boðað hefur verið til opins fræðslufundar í Ólíkindalandi. Framsögufólk er sagt frá Sjálfræðisflokknum sem lagt hefur gríðarlega áherslu á meinta yfirburði krónu landsins gagnvart öðrum gjaldmiðlum heimsbyggðarinnar. Í fundarboðinu er greint frá því að framsögumenn hafi síðustu árin lagt hart að sér að fræða þá sem hafa lent í þeirri ógæfu að nýta sér evruna og dollar í rekstri fyrirtækja sinna enda farsælast að þeirra dómi fyrir öll fyrirtæki á landinu góða að halda sig við innlendu krónuna sem er eitt af undrum veraldar. Því miður hefur þessi virðingarverða viðleitni ekki haggað nokkrum einasta þeirra sem hefur fært sig yfir í evruna eða dollar en þau horfa hins vegar á sama tíma upp á fyrirtæki og einstaklinga sem eru lokuð inni í krónu-hagkerfinu og taka á sig alla vexti sem Yfirseðlabankanum og öðrum bönkum þóknast að leggja á til þess að reyna í örvæntingu sinni að bjarga fólki og fyrirtækjum frá afleiðingum verðbólgunnar. Það er því verðugt verkefni að sýna þessu villuráfandi fólki fram á að þetta dekur við erlenda gjaldmiðla er ekki bara til marks um kæruleysi gagnvart sjálfstæði þjóðarinnar heldur jafnframt eitthvert mesta ofmat á gildi þess að greiða mun lægri vexti og að vera í traustara rekstrarumhverfi. Ekkert slíkt getur komið í stað þess að standa fast á fullveldi þjóðarinnar og axla það mótlæti og þær þjáningar sem því fylgir. Fróðlegt verður fyrir fundarmenn að heyra framsögumenn færa rök fyrir máli sínu, ekki síst þegar að því kemur að varaformaður Sjálfræðisflokksins fer að tíunda hvað hann og fleiri í hans sporum hafa verið í mikilli villu þegar þeir yfirgáfu sjálfir krónuna um árið og færðu allan sinn rekstur í evrum fyrir vanvisku sakir og kæruleysis. Búast má við að frásögnin af þessum atburðum í lífi framsögumanns verði hádramatísk og hann reki jafnvel í vörðurnar, eigi erfitt um mál enda fær slík lífsreynsla mjög á alla hugsandi menn þegar þeir eru í þann mund að snúa frá villu síns vegar með tilheyrandi iðrun. Þá verður ekki síður athyglisvert að heyra helstu talskonu flokksins gera fundarmönnum grein fyrir því göfuga hlutverki að fá að taka á sig aukin útgjöld í mynd hæstu vaxta sem um getur og leggja þannig sitt að mörkum til að halda minnsta gjaldmiðli veraldarinnar með einhverskonar lífsmarki. Eins og flestir vita er það að dómi fundarboðenda eitt mikilvægasta framlag til að tryggja sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar. Af þeim ástæðum einum hverfa allar þær þrautir sem fylgja baráttunni fyrir tilvist hinnar örsmáu myntar eins og dögg fyrir sólu; aðalatriðið er að eiga sinn eigin gjaldmiðil, taka fagnandi þeim þjáningum sem af því leiðir í þeirri göfugu trú að þær hafi verið og verði ávallt forsenda allra framfara. Sanna um leið fyrir umheiminum að hér úti í reginhafi gerast enn kraftaverk, undur og stórmerki. Allt í gegnum vaxtanauð og annað slíkt mótlæti sem fylgir því að halda hluta þjóðarinnar í vaxtaumhverfi sem hinn helmingur landsmanna hefur forðað sér undan. Þriðji framsögumaður fundarins verður fyrrverandi formaður flokksins sem fjallar um gildi þess fyrir land og þjóð að láta ekki glepjast af þeim fagurgala að upptaka evru eða annarrar slíkrar myntar muni færa okkur einhverjar umbætur fyrir einstaklinga og fyrirtæki, jafnvel betri lífskjör. Sjálfur hafi hann á tímabili verið veikur fyrir þessum rökum en nú sé hann algjörlega einkennalaus af þeirri þráhyggju og teljist jafnvel albata. Heyrst hefur að töluverður spenningur sé fyrir þessari framsöguræðu enda eru margir í flokknum á þeirri skoðun að mun hollara sé fyrir land og þjóð að nota alþjóðagjaldmiðil og leggja af krónuna sem margir hafi samt tilbeiðslukennda trú á. Það verður því fróðlegt að heyra fyrrum formann færa sín rök fyrir því að farsælast sé að skipta þjóðinni áfram í tvo hópa: þá sem geta valið erlenda mynt í sínum rekstri og hina sem viljugir eða nauðugir verða framvegis lokaðir inni í innlenda krónuhagkerfinu og lifa þar næstu ár og áratugi. Auðvitað má búast við því að framsöguræður á þessum fundi verði dramatískar og jafnvel átakanlegar. Margir vænta þess þó að þær verði ekki síður broslegar og jafnvel sprenghlægilegar. Því er ekki útilokað að skemmtanagildi þessa alvarlega fræðslufundar Sjálfræðisflokksins gæti orðið töluvert. Höfundur er eftirlaunaþegi og fyrrum forstöðumaður samtaka fyrirtækja í málmskipaiðnaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingólfur Sverrisson Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun