Martin sló met Jóns Arnórs og Hauks Helga en Tryggvi náði Hlyni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. september 2025 14:33 Martin Hermannsson er nú orðinn stigahæsti leikmaður Íslands í sögu úrslitakeppni Evrópumótsins i körfubolta. Vísir/Hulda Margrét Martin Hermannsson varð í gær stigahæsti leikmaður Íslands frá upphafi í úrslitakeppni Evrópumótsins í körfubolta. Tryggvi Snær Hlinason sló einnig frákastametið. Martin skoraði 22 stig í leiknum á móti Slóveníu og bætti með því stigamet Hauks Helga Pálssonar. Haukur Helgi skoraði 123 stig á fyrstu tveimur Evrópumótum íslenska landsliðsins en Martin var með 87 stig á þessum tveimur mótum. Martin var í fjórða sæti á stigalistanum fyrir mótið í gær en hafði tekið fram úr Hlyni Bæringssyni fyrir leikinn á móti Slóveníu. Í gær fór hann síðan fram úr bæði Jóni Arnóri Stefánssyni (119) og Hauki (123). Eftir leikinn er Martin kominn með 135 stig fyrir Íslands á Eurobasket mótum. Hann hefur skorað 9,6 stig að meðaltali í leik í fjórtán leikjum sínum. Í leiknum á undan hafði Martin einnig slegið stoðsendingamet Jóns Arnórs. Jón Arnór gaf 38 stoðsendingar á fyrstu tveimur Evrópumótum Íslands en Martin var fimmtán stoðsendingum á eftir honum fyrir þetta mót. Martin er nú kominn með 23 stoðsendingar á þessum Evrópumóti og þar með 46 stoðsendingar samtals eða 3,3 að meðaltali í leik. Tryggvi Snær Hlinason sló einnig met í leiknum á móti Slóveníu en hann er nú orðinn sá leikmaður sem hefur tekið flest fráköst fyrir Ísland í úrslitakeppni EM. Hlynur Bæringsson tók 55 fráköst á fyrstu tveimur mótum Íslands en Tryggvi hóf þetta mót 42 fráköstum á eftir honum. Pavel Ermolinskij var í öðru sæti og Haukur Helgi í því þriðja. Tryggvi hefur hins vegar tekið 48 fráköst á þessu móti og er þar með kominn með 61 samanlagt eða sex fleiri en Hlynur. Tryggvi er með 6,7 fráköst í leik en Hlynur var með 5,5 fráköst í leik. Flest stig fyrir Ísland á Eurobasket: 1. Martin Hermannsson 135 2. Haukur Helgi Pálsson 123 3. Jón Arnór Stefánsson 119 4. Hlynur Bæringsson 95 5. Tryggvi Snær Hlinason 86 6. Hörður Axel Vilhjálmsson 74 7. Elvar Már Friðriksson 67 8. Logi Gunnarsson 52 - Flestar stoðsendingar fyrir Ísland á Eurobasket: 1. Martin Hermannsson 46 2. Jón Arnór Stefánsson 38 3. Hörður Axel Vilhjálmsson 28 4. Haukur Helgi Pálsson 24 5. Hlynur Bæringsson 18 5. Elvar Már Friðriksson 18 7. Pavel Ermolinskij 17 7. Ægir Þór Steinarsson 17 - Flest fráköst fyrir Ísland á Eurobasket: 1. Tryggvi Snær Hlinason 61 2. Hlynur Bæringsson 55 3. Martin Hermannsson 43 3. Pavel Ermolinskij 43 5. Haukur Helgi Pálsson 28 6. Jón Arnór Stefánsson 26 7. Hörður Axel Vilhjálmsson 23 EM 2025 í körfubolta Landslið karla í körfubolta Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn ÍA-Stjarnan 5-1: Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Íslenski boltinn Lokadagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Íslendingarnir? Sport Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Kvenkyns dómari slasaðist í slagsmálum í vináttuleik Fótbolti Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Fleiri fréttir Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Sjá meira
Martin skoraði 22 stig í leiknum á móti Slóveníu og bætti með því stigamet Hauks Helga Pálssonar. Haukur Helgi skoraði 123 stig á fyrstu tveimur Evrópumótum íslenska landsliðsins en Martin var með 87 stig á þessum tveimur mótum. Martin var í fjórða sæti á stigalistanum fyrir mótið í gær en hafði tekið fram úr Hlyni Bæringssyni fyrir leikinn á móti Slóveníu. Í gær fór hann síðan fram úr bæði Jóni Arnóri Stefánssyni (119) og Hauki (123). Eftir leikinn er Martin kominn með 135 stig fyrir Íslands á Eurobasket mótum. Hann hefur skorað 9,6 stig að meðaltali í leik í fjórtán leikjum sínum. Í leiknum á undan hafði Martin einnig slegið stoðsendingamet Jóns Arnórs. Jón Arnór gaf 38 stoðsendingar á fyrstu tveimur Evrópumótum Íslands en Martin var fimmtán stoðsendingum á eftir honum fyrir þetta mót. Martin er nú kominn með 23 stoðsendingar á þessum Evrópumóti og þar með 46 stoðsendingar samtals eða 3,3 að meðaltali í leik. Tryggvi Snær Hlinason sló einnig met í leiknum á móti Slóveníu en hann er nú orðinn sá leikmaður sem hefur tekið flest fráköst fyrir Ísland í úrslitakeppni EM. Hlynur Bæringsson tók 55 fráköst á fyrstu tveimur mótum Íslands en Tryggvi hóf þetta mót 42 fráköstum á eftir honum. Pavel Ermolinskij var í öðru sæti og Haukur Helgi í því þriðja. Tryggvi hefur hins vegar tekið 48 fráköst á þessu móti og er þar með kominn með 61 samanlagt eða sex fleiri en Hlynur. Tryggvi er með 6,7 fráköst í leik en Hlynur var með 5,5 fráköst í leik. Flest stig fyrir Ísland á Eurobasket: 1. Martin Hermannsson 135 2. Haukur Helgi Pálsson 123 3. Jón Arnór Stefánsson 119 4. Hlynur Bæringsson 95 5. Tryggvi Snær Hlinason 86 6. Hörður Axel Vilhjálmsson 74 7. Elvar Már Friðriksson 67 8. Logi Gunnarsson 52 - Flestar stoðsendingar fyrir Ísland á Eurobasket: 1. Martin Hermannsson 46 2. Jón Arnór Stefánsson 38 3. Hörður Axel Vilhjálmsson 28 4. Haukur Helgi Pálsson 24 5. Hlynur Bæringsson 18 5. Elvar Már Friðriksson 18 7. Pavel Ermolinskij 17 7. Ægir Þór Steinarsson 17 - Flest fráköst fyrir Ísland á Eurobasket: 1. Tryggvi Snær Hlinason 61 2. Hlynur Bæringsson 55 3. Martin Hermannsson 43 3. Pavel Ermolinskij 43 5. Haukur Helgi Pálsson 28 6. Jón Arnór Stefánsson 26 7. Hörður Axel Vilhjálmsson 23
Flest stig fyrir Ísland á Eurobasket: 1. Martin Hermannsson 135 2. Haukur Helgi Pálsson 123 3. Jón Arnór Stefánsson 119 4. Hlynur Bæringsson 95 5. Tryggvi Snær Hlinason 86 6. Hörður Axel Vilhjálmsson 74 7. Elvar Már Friðriksson 67 8. Logi Gunnarsson 52 - Flestar stoðsendingar fyrir Ísland á Eurobasket: 1. Martin Hermannsson 46 2. Jón Arnór Stefánsson 38 3. Hörður Axel Vilhjálmsson 28 4. Haukur Helgi Pálsson 24 5. Hlynur Bæringsson 18 5. Elvar Már Friðriksson 18 7. Pavel Ermolinskij 17 7. Ægir Þór Steinarsson 17 - Flest fráköst fyrir Ísland á Eurobasket: 1. Tryggvi Snær Hlinason 61 2. Hlynur Bæringsson 55 3. Martin Hermannsson 43 3. Pavel Ermolinskij 43 5. Haukur Helgi Pálsson 28 6. Jón Arnór Stefánsson 26 7. Hörður Axel Vilhjálmsson 23
EM 2025 í körfubolta Landslið karla í körfubolta Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn ÍA-Stjarnan 5-1: Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Íslenski boltinn Lokadagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Íslendingarnir? Sport Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Kvenkyns dómari slasaðist í slagsmálum í vináttuleik Fótbolti Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Fleiri fréttir Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Sjá meira