Körfubolti

Kokkur í vand­ræðum með hrá­efni eldi aldrei gæðamáltíð

Aron Guðmundsson skrifar
Benedikt Guðmundsson, sérfræðingur Körfuboltakvölds, kom inn á mikilvægan punkt í nýjasta þættinum á Sýn Sport
Benedikt Guðmundsson, sérfræðingur Körfuboltakvölds, kom inn á mikilvægan punkt í nýjasta þættinum á Sýn Sport Vísir

Slæm frammistaða margra erlendra atvinnumanna í fyrstu umferð Bónus deildar karla í körfubolta vakti athygli sérfræðings Körfuboltakvölds sem segir þessa leikmenn þurfa að koma með eitthvað annað að borðinu.

Benedikt Guðmundsson, þjálfarinn reyndi sem er nú sérfræðingur Körfuboltakvölds, tók saman lista yfir tíu erlenda atvinnumenn hjá liðum í Bónus deildinni í fyrstu umferð sem heilluðu hann alls ekki.

Hann ætlar sér ekki að vera fljótur að dæma, hafa verði í huga að aðeins ein umferð sé búin af deildinni en að þetta séu hlutir sem liðin í deildinni verði að negla rétt.

Klippa: Umræða um erlenda atvinnumenn

„Atvinnumenn sem kosta, þeir verða að koma með eitthvað annað að borðinu,“ sagði Benedikt í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport. „Ef lið ætlar að vera með fjóra atvinnumenn þá verða þeir allavega að vera með þau gæði að þeir séu betri heldur en Íslendingarnir sem eru ekki að spila. Þeir eru að taka pláss frá fullt af Íslendingum. Við sem þjálfarar, ef þú ert að sækja menn, þá er þetta það fyrsta sem verður að vera í lagi.

Kokkur sem er lélegur í að sækja sér hráefni verður aldrei með gæðamáltíðir. Það er alveg sama hversu góðir þeir eru í eldhúsinu. Ef þeir geta ekki sótt hráefni þá verða þeir bara í vandræðum. Í þessu tilfelli verður liðið í vandræðum. Þetta þurfa að vera hráefni sem passa saman. Ég hef áhyggjur af nokkrum liðum svona í fyrstu umferð. Ég sá þetta ekki í fyrra, mér þótti þetta betri í fyrra.“

Umræðuna um frammistöðu erlendra atvinnumanna í fyrstu umferð Bónus deildar karla úr Körfuboltakvöldi má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×