Orðin dýrust í sögu kvennaboltans Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. september 2025 13:46 Grace Geyoro skorar í leik Frakklands og Þýskalands í átta liða úrslitum á EM í sumar. epa/GEORGIOS KEFALAS London City Lionesses hafa keypt frönsku landsliðskonuna Grace Geyoro frá Paris Saint-Germain fyrir metverð. London City greiddi 1,4 milljón punda fyrir Geyoro sem er dýrasti leikmaður í sögu kvennaboltans.
London City eru nýliðar í ensku deildinni en hafa verið virkir á félagaskiptamarkaðnum og keypt hvorki fleiri né færri en sextán leikmenn fyrir tímabilið sem hefst um helgina. Meðal leikmanna sem London City hefur fengið eru Danielle van de Donk, Nikita Parris og Katie Zelem. London City er í eigu hinnar vellauðugu Michele Kang sem á einnig Washington Spirit í Bandaríkjunum og Lyon í Frakklandi. Geyoro, sem er 28 ára, hefur leikið 103 landsleiki fyrir Frakkland og skorað 23 mörk. Hún varð einu sinni franskur meistari með PSG og þrisvar sinnum bikarmeistari. Í síðasta mánuði gerði Orlando Pride mexíkóska kantmanninn Lizbeth Ovalle að dýrasta leikmanni í sögu kvennaboltans þegar félagið greiddi Tigres UNAL 1,1 milljón punda fyrir hana. Metið stóð ekki lengi því Geyoro er nú orðin dýrasta fótboltakonan í sögunni. Það met hefur verið slegið fjórum sinnum í ár. London City mætir Arsenal í 1. umferð ensku deildarinnar á morgun en Geyoro gæti þreytt frumraun sína með liðinu gegn Manchester United um þarnæstu helgi.
Enski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Fótbolti Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Íslenski boltinn City að vinna United í slagnum um Anderson Enski boltinn Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Íslenski boltinn „Restin var bara ekki með“ Fótbolti Fleiri fréttir Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Harðorð skýrsla og allt í skrúfunni hjá Southampton Slot tjáði sig loks eftir árás Salah Fyrirliðinn víðsfjarri þegar Tottenham gæti fallið Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Sjá meira