Madríd með fullt hús stiga á toppnum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. september 2025 13:47 Hættir ekki að skora. Angel Martinez/Getty Images Eftir nauman sigur á Marseille í miðri viku vann Real Madríd nokkuð þægilegan 2-0 sigur á Espanyol í La Liga, efstu deild karla á Spáni. Brasilíski miðvörðurinn Éder Militão kom heimamönnum í Real yfir um miðbik fyrri hálfleiks eftir undirbúning Federico Valverde. Í upphafi síðari hálfleik gerði Kylian Mbappé út um leikinn eftir sendingu frá Vinícius Júnior. Hinn 26 ára gamli Mbappé hefur nú skorað sjö mörk í aðeins sex leikjum á leiktíðinni. Alls hefur hann skorað 36 mörk í 39 leikjum í La Liga. Real Madríd hefur nú unnið alla fimm leiki sína í La Liga og trónir á toppnum með fimm stiga forystu á meistara Barcelona sem eiga leik til góða. Spænski boltinn Fótbolti
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn
Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Íslenski boltinn