Madueke frá í tvo mánuði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. september 2025 12:31 Noni Madueke í leiknum gegn Manchester City. epa/VINCE MIGNOTT Noni Madueke, leikmaður Arsenal, verður frá keppni næstu tvo mánuðina vegna meiðsla sem hann varð fyrir í jafnteflinu við Manchester City, 1-1, í fyrradag.
Madueke fór af velli í hálfleik í leiknum á Emirates. Eftir hann sagði Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, að Madueke hefði fundið fyrir óþægindum í hné snemma leiks og ekki verið í ástandi til að halda áfram. Enskir fjölmiðlar greina frá því að meiðslin muni halda Madueke frá keppni í tvo mánuði. Talsverð meiðsli hafa herjað á Arsenal að undanförnu. Kai Havertz er að jafna sig eftir hnéaðgerð og fyrirliðinn Martin Ødegaard hefur misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að Bukayo Saka sneri aftur gegn City en hann kom inn á í hálfleik fyrir Madueke. Arsenal keypti Madueke frá Chelsea fyrir tæplega fimmtíu milljónir punda í sumar. Hann þótti spila vel með enska landsliðinu í tveimur leikjum þess í undankeppni HM 2026 fyrr í mánuðinum. Næsti leikur Arsenal er gegn Port Vale í 3. umferð enska deildabikarsins annað kvöld.
Enski boltinn Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Sjá meira