Stífla Álvarez brast í dramatískum sigri Atlético Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. september 2025 21:39 Julian Alvarez verður ekki gagnrýndur fyrir færanýtinguna í þessum leik, líkt og hann hefur lent í upp á síðkastið. Diego Souto/Getty Images Julian Álvarez skoraði þrennu og tryggði Atlético Madrid 3-2 sigur á lokamínútunum gegn Rayo Vallecano í sjöttu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
Álvarez komst á blað í fyrstu umferð deildarinnar en hafði ekki skorað í síðustu fjórum leikjum og fengið harða gagnrýni fyrir sína færanýtingu. Hann þaggaði niður í þeirri gagnrýni eftir aðeins fimmtán mínútur í leik kvöldsins þegar hann tók forystuna fyrir Atlético eftir sendingu Marcos Llorente. Óvænt náðu gestirnir hins vegar að jafna í uppbótartíma fyrri hálfleiks og á 77. mínútu komust þeir yfir. Álvarez hafði þá farið illa með eitt dauðafæri en átti eftir að stíga aftur upp. Hann skoraði jöfnunarmark aðeins þremur mínútum eftir að Atlético lenti undir og á 88. mínútu tryggði hann 3-2 sigur með sínu þriðja marki í leiknum. Ákveðið áhyggjuefni er hins vegar fyrir lærisveina Diego Simeone að þó þeir hafi unnið þennan leik þá hafa þeir tapað niður forystu í fimm af fyrstu sex deildarleikjunum. Hinum fjórum náðu þeir ekki að snúa við eins og í kvöld. Atlético er því aðeins í níunda sæti deildarinnar eftir sex umferðir. Real Sociedad, lið Orra Steins Óskarssonar, vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu á sama tíma í kvöld. 1-0 gegn Mallorca þökk sé Mikel Oyarzabal. Orri var ekki með vegna meiðsla sem hann hefur glímt við í tæpan mánuð.
Spænski boltinn Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Handbolti Fleiri fréttir Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Sjá meira