Föst á Spáni næstu mánuði vegna meðgöngukvilla Árni Sæberg skrifar 2. október 2025 15:05 Bergur og Rebekka takast á við stöðuna af æðruleysi. Hjónin Rebekka Rún Sigurgeirsdóttir og Bergur Vilhjálmsson sjá fram á að vera föst í Barcelona á Spáni næstu mánuði vegna kvilla sem kom upp á meðgöngu Rebekku. Þau vonast til þess að komast heim fyrir jól en hafa þangað til ekki í nein hús að venda í Barcelona og halda til á spítala. Þau leita nú logandi ljósi að íbúð nálægt spítalanum til þess að geta fengið börn sín til sín.
Bergur greindi frá stöðunni sem komin er upp á Facebook í morgun í von um það að einhver gæti hjálpað þeim að finna íbúð í Barcelona. Í samtali við Vísi segir hann að þau hafi ákveðið að bregða sér til Barcelona til þess að ná sér niður eftir sumarið. Bæði vegna þrekraunar hans í sumar en einnig vegna þess að meðgangan hefði gengið upp og niður. Þrekraun hans í sumar fólst í tólf daga göngu frá Goðafossi að Gróttuvita með hundrað kílóa kerru í eftirdragi til að vekja athygli á Píeta samtökunum. Það eina í stöðunni Bergur segir að þau hjónin hafi fengið grænt ljós frá læknum til þess að fara í frí til Barcelona en á þriðjudaginn í síðustu viku, þegar þau höfðu verið úti í nokkra daga, hafi legvatn farið að leka og í ljós komið að gat hefði komið á belginn. Þá hafi orðið ljóst að fyrirburafæðing væri yfirvofandi og Rebekka fengið sterasprautu til þess að fresta fæðingunni. Þau hafi haft samband við SOS International, sem hafi skipulagt fyrir þau sjúkraflug. Aftur á móti hafi komið í ljós við skoðun að svo gott sem ekkert legvatn væri til staðar og fóstrið væri í sitjandi stöðu, það er að segja að höfuðið hafi snúið upp en ekki niður. Því hafi læknar metið það sem svo að sjúkraflug væri hættulegt bæði móður og barni. Þeim hafi verið tjáð að þau mættu fara í sjúkraflugið en það væri á þeirra ábyrgð að taka áhættuna. „Við erum náttúrulega ekki að fara að taka þá áhættu miðað við stöðuna. Við erum búin að spyrja alla í kringum okkur og allir segja það sama, þetta er það eina í stöðunni, að vera föst hérna í Barcelona. Hún er tæknilega séð útskrifuð af spítalanum en þarf að koma á tveggja vikna fresti í skoðun. En af því að við höfum engan samastað hérna þá geta þeir ekki hent okkur út af spítalanum. Verkefnið núna er að finna einhvern samastað hérna nálægt spítalanum.“ Vilja fá börnin til sín Þau hafi síðan á þriðjudaginn í síðustu viku bæði dvalið á sjúkrahúsinu, Rebekka í sjúkrarúmi og Bergur á bedda í sama herbergi. „Við höfum allavega fengið að vera saman, hún hefur ekki þurft að vera mikið ein.“ Bergur ber sjúkrahúsinu velsöguna og segir vel hafa verið haldið utan um þau. „Hér er allt upp á tíu komma fimm,“ segir hann. Þrátt fyrir það vilji þau ólm finna sér íbúð í grennd við spítalann, helst ekki í meira en hálftíma fjarlægð, ekki síst til þess að tvö ung börn þeirra geti komið til þeirra. Þau skilji ekki stöðuna og það sé mikilvægt Rebekku að fá börnin til sín, til þess að henni líði vel andlega. Aukið andlegt álag geti orðið til þess að hún fari af stað löngu fyrir settan dag. Hún sé aðeins komin 28 vikur á leið. Fjölskyldan vill sameinast á Spáni. „Þetta er skrítin staða sem við erum í. Þetta er ekki þetta rólega frí sem við ætluðum að fara í.“ Ekki hver sem er sem á íbúð til að leigja Þá segir hann að fjöldi fólks hafi þegar sett sig í samband við þau og lýst yfir eindregnum vilja til að styðja þau í verkefninu. Hins vegar sé fólk sem á íbúð í Barcelona til þess að lána eða leigja þeim ekki á hverju strái. Enn sem komið er séu þau enn að leita. „Svo eins og gefur að skilja þá kostar þetta allt. Tryggingarnar hjálpa okkur auðvitað eitthvað en það kostar að leigja íbúð í mánuð eða tvo í ofanálag við allan spítalakostnað. Svo þurfum við einhvern veginn að komast heim og annað. Þetta er allt eitthvað sem við erum að reyna að finna út úr. Mestu máli skiptir auðvitað að það verði í lagi með alla, peningar koma og fara.“ Reiknað með keisaraskurði 11. nóvember Bergur segir að læknarnir ytra hafi sagt þeim að Rebekka fái ekki að ganga lengur með barnið en fram að 34. viku. Því sé búið að bóka skurðstofu fyrir keisaraskurð þann 11. nóvember. Þá muni fjölskyldan þurfa að liggja á vökudeild í óákveðinn tíma, sem fari eftir líðan barnsins. „Við erum að horfa á að vera komin heim fyrir jól vonandi. Það er einhver dagsetning sem við erum að miða við en það er kannski bara óskhyggja í okkur. Það fer allt eftir því hvenær litla stelpan okkar kemur. Þau segja hérna úti að þetta séu svona einn á móti milljón aðstæður. Það eru ekki miklar líkur á lenda í svona aðstæðum og vera þannig séð bara strandaglópar.“
Meðganga Spánn Íslendingar erlendis Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira