Hægviðri og þokusúld framan af degi Jón Ísak Ragnarsson skrifar 18. október 2025 08:02 Í dag verður skýjað og dálítil súld á vestanverðu landinu framan af degi. Í dag verður hæg suðvestlæg eða breytileg átt, en minnkandi suðvestanátt norðvestantil. Skýjað og víða dálítil súld á vestanverðu landinu en yfirleitt léttskýjað eystra.
Gengur í norðan og norðaustan 5-13 seinnipartinn með dálítilli vætu, en léttir til á Suðvesturlandi.Hægari austlæg átt á morgun og skúrir eða él norðan og austantil, en annars skýjað að mestu. Hiti 4 til 10 stig í dag, en kólnar í kvöld, hiti 1 til 7 stig á morgun. Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar segir að hægviðri verði í dag og víða þokusúld en áfram bjart austanlands. „Þegar líður á daginn gengur í norðan og norðaustan 5-13 m/s og þykknar upp með dálítilli rigningu norðantil en birtir til syðra. Hiti 5 til 10 stig framan af degi en kólnar svo. Útlit fyrir svala norðaustanátt með éljum norðaustantil en skúrum við suðurströndina á sunnudag. Svo er útlit fyrir að kólni enn frekar dagana þar á eftir.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag:Austan og norðaustan 3-13 m/s, hvassast suðaustanlands. Skýjað að mestu, dálítil væta á stöku stað og lítilsháttar él norðaustantil. Hiti 1 til 7 stig.Á mánudag:Norðaustan 5-15 m/s, hvassast á norðvestanverðu landinu. Snjókoma eða él fyrir norðan, en slydda eða rigning suðvestantil og snjókoma á heiðum. Lengst af þurrt á Suðausturlandi. Kólnandi veður.Á þriðjudag:Norðaustan 8-13, él og hiti um frostmark. Léttir til sunnan- og vestanlands og hiti að 4 stigum að deginum.Á miðvikudag:Norðlæg átt og víða bjart, en skýjað og lítilsháttar él fyrir norðan. Hiti um og undir frostmarki.Á fimmtudag og föstudag:Útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt og þurrt að kalla, en að mestu bjart sunnantil. Frost 0 til 5 stig yfir daginn
Veður Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Sjá meira