Sundabrú minnir á helsta kennileiti Norður-Noregs Kristján Már Unnarsson skrifar 19. október 2025 07:37 Brúin til Tromsø var lengsta brú Norður-Evrópu þegar hún var opnuð árið 1960. Hún er 1.036 metra löng. Áætlað er að Sundabrú verði 1.172 metra löng. wikipedia/Lars Tiede Sundabrú, sem Vegagerðin mælir með að verði reist yfir Kleppsvík, minnir um margt á Tromsøbrú, helsta kennileiti Tromsø, stærstu borgar Norður-Noregs. Brýrnar yrðu álíka langar og álíka háar, báðar steinsteyptar á súlum og ekki ósvipaðar útlits.
Tromsøbrú var byggð á árunum 1958 til 1960 og tengdi eyna Tromsø við fastaland Noregs. Hún var opnuð þann 3. júlí 1960 af Einari Gerhardsen, forsætisráðherra Noregs, og var hún þá lengsta brú í Norður-Evrópu, 1.036 metra löng og 36 metra há. Brúartollur var innheimtur fyrstu tíu árin. Á Tromsøbrú eru tvær akreinar fyrir bíla, ein í hvora átt. Öðrumegin á brúnni er sérstök gönguleið fyrir gangandi vegfarendur en hinumegin sérstök hjólaleið fyrir reiðhjólafólk. Framundan er að breikka hjólastíginn á Tromsøbrú um hálfan metra.Tenk Tromsø Opnun brúarinnar varð til þess að íbúum Tromsø fjölgaði samfara vaxandi bílaeign. Umferðarteppur við brúna urðu tíðari með árunum og að því kom að hún annaði ekki umferðinni. Því var ákveðið að grafa einnig jarðgöng undir Tromsøsund og voru þau opnuð árið 1994. Tromsøysundsgöngin er 3,5 kílómetra löng. Umferð hjólreiðamanna og gangandi vegfarenda er ekki leyfð um göngin.Wikimedia Tvenn samhliða göng voru grafin með alls fjórum akreinum, tveimur í hvora átt. Þar sem göngin ná niður á 102 metra dýpi þurfti að hafa þau meira en þrefalt lengri en brúna til að jafna hallann, eða 3.500 metra löng. Umferð gangandi vegfarenda og hjólreiðafólks er hins vegar bönnuð um göngin vegna slysahættu, eins og tilfellið yrði með Sundagöng. Brúarhandriðið var hækkað eftir röð sjálfsvíga.Wiki/Elin Olsen Tromsøbrú hefur frá fyrstu tíð verið vinsæl gönguleið, þrátt fyrir að þar gusti meira en inni í bænum. Um fimmtán mínútur tekur að ganga yfir brúna á venjulegum gönguhraða og af henni fæst mikið útsýni. Og hjólaleiðin er orðið það mikið notuð að búið er að ákveða að breikka reiðhjólastíginn um hálfan metra með því að bæta utan á brúna án þess að þrengja bílaakreinar. Nokkur sjálfsvíg á innan við einu ári vörpuðu skugga á brúna. Þau urðu til þess að árið 2005 var brúarhandriðið hækkað til að hindra að fólk gæti stokkið fram af. Sú ráðstöfun reyndist vel og í skýrslu þrettán árum síðar kom fram að ekkert sjálfsvíg hafði orðið á brúnni eftir breytinguna. Brúin yfir Sandnessund tengir Tromsø og Kvaløya. Flugvöllurinn á Tromsø er við brúarsporðinn.wikimedia/Guttorm Raknes Árið 1974 vígði Haraldur krónprins, núverandi konungur, aðra stórbrú í Tromsø, Sandnessundsbrúna, sem tengdi Tromsø við Kvaløya. Sú brú er í sama stíl en ennþá stærri, 1.220 metra löng. Brúartollur var innheimtur á henni í átta ár. Tromsø liggur mun norðar en Ísland og íbúarnir upplifa heimskautaveður með vetrarstormum, snjókomu og ísingu. Þótt oft blási hressilega er Tromsøbrú sjaldan lokað vegna veðurs og þá aðeins um skamma stund í hvert sinn. Þannig var brúin lokuð vegna veðurs í samtals fimm og hálfa klukkustund árið 2022 og í samtals fjórar klukkustundir árið 2023 og dreifðust þessar lokanir á nokkra daga. Kortið sýnir Tromsø og brýrnar tvær með blágrænum lit og jarðgöngin með appelsínugulum lit. Tromsøbrú er sunnar, Sandnessundsbrú norðar.Stöð2/skjáskot Árið 1960, þegar fyrri brúin var opnuð, bjuggu 12 þúsund manns í Tromsø. Áratug síðar, árið 1970, var íbúafjöldinn kominn upp í 38 þúsund manns. Núna búa um 80 þúsund manns í Tromsø, en hluti af fólksfjölguninni er vegna sameiningar við nærliggjandi sveitarfélög. Árið 2002 var Tromsøbrú vernduð sem mikilvægar vegminjar. Hún var svo friðlýst árið 2008 af norska menningarmálaráðuneytinu. Stöð 2 heimsótti Tromsø árið 2011 og gerði þá þessa frétt:
Sundabraut Noregur Vegagerð Samgöngur Vegtollar Hjólreiðar Göngugötur Tengdar fréttir Vegagerðin sannfærð um kosti brúar umfram göng Vegagerðin telur að markmið um bættar samgöngur fyrir alla ferðamáta með lagningu Sundabrautar náist að mestu með því að byggja brú yfir Kleppsvík, jarðgöng nái síður að uppfylla þau markmið, þau útiloki samgöngumöguleika hjólandi og gangandi. Í undirbúningi séu opnir kynningarfundir vegna væntanlegrar umhverfismatsskýrslu um brautina, sem von er á í samráðsgátt Skipulagsstofnunar í næstu viku. 9. október 2025 15:48 Við gætum farið að aka Sundabraut eftir sjö ár Framkvæmdir við Sundabraut gætu hafist eftir tvö ár, gangi áform stjórnvalda eftir. Þeir sem vilja lýsa skoðun sinni hafa núna sex vikna frest, til 30. nóvember, til að koma áliti sínu á framfæri. 15. október 2025 22:00 Tromsö eins og að flytja heim á Ísafjörð Ráðning Íslendings sem framkvæmdastjóra skrifstofu Norðurskautsráðsins er viðurkenning fyrir framlag Íslands til Norðurslóða, segir Magnús Jóhannesson, sem tók við starfinu í vikunni. Íslendingar buðu fram Reykjavík undir höfuðstöðvarnar en Tromsö hafði betur. Þjóðfánar þeirra átta ríkja sem mynda Norðurskautsráðsráðið voru leiddir fram við athöfn sem markaði stofnun fastaskrifstofu ráðsins. 25. janúar 2013 19:15 Tromsö eflist sem heimsborg norðursins Þrátt fyrir að bærinn Tromsö í Norður-Noregi sé talsvert norðar en Kolbeinsey fjölgar fólki þar tvöfalt hraðar en í Reykjavík og gæti svo farið að þessi höfuðstaður Norður-Noregs verði stærri en höfuðborg Íslands á næstu áratugum. 26. apríl 2011 18:49 Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Erlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Innlent Fleiri fréttir Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Sjá meira
Vegagerðin sannfærð um kosti brúar umfram göng Vegagerðin telur að markmið um bættar samgöngur fyrir alla ferðamáta með lagningu Sundabrautar náist að mestu með því að byggja brú yfir Kleppsvík, jarðgöng nái síður að uppfylla þau markmið, þau útiloki samgöngumöguleika hjólandi og gangandi. Í undirbúningi séu opnir kynningarfundir vegna væntanlegrar umhverfismatsskýrslu um brautina, sem von er á í samráðsgátt Skipulagsstofnunar í næstu viku. 9. október 2025 15:48
Við gætum farið að aka Sundabraut eftir sjö ár Framkvæmdir við Sundabraut gætu hafist eftir tvö ár, gangi áform stjórnvalda eftir. Þeir sem vilja lýsa skoðun sinni hafa núna sex vikna frest, til 30. nóvember, til að koma áliti sínu á framfæri. 15. október 2025 22:00
Tromsö eins og að flytja heim á Ísafjörð Ráðning Íslendings sem framkvæmdastjóra skrifstofu Norðurskautsráðsins er viðurkenning fyrir framlag Íslands til Norðurslóða, segir Magnús Jóhannesson, sem tók við starfinu í vikunni. Íslendingar buðu fram Reykjavík undir höfuðstöðvarnar en Tromsö hafði betur. Þjóðfánar þeirra átta ríkja sem mynda Norðurskautsráðsráðið voru leiddir fram við athöfn sem markaði stofnun fastaskrifstofu ráðsins. 25. janúar 2013 19:15
Tromsö eflist sem heimsborg norðursins Þrátt fyrir að bærinn Tromsö í Norður-Noregi sé talsvert norðar en Kolbeinsey fjölgar fólki þar tvöfalt hraðar en í Reykjavík og gæti svo farið að þessi höfuðstaður Norður-Noregs verði stærri en höfuðborg Íslands á næstu áratugum. 26. apríl 2011 18:49