Þrenna Mateta kom í veg fyrir að Bournemouth kæmist á toppinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. október 2025 16:18 Jean-Philippe Mateta skoraði gegn Íslandi á Laugardalsvelli og setti þrennu gegn Bournemouth á Selhurst Park í dag. getty/Sebastian Frej Jean-Philippe Mateta skoraði þrennu þegar Crystal Palace gerði 3-3 jafntefli við Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag. Jöfnunarmarkið kom á 97. mínútu en með því kom Mateta í veg fyrir að Bournemouth færi á topp deildarinnar.
Bournemouth komst í 0-2 með tveimur mörkum hins nítján ára Frakka, Eli Junior Kroupi, í fyrri hálfleik en landi hans, Mateta, jafnaði fyrir Palace með tveimur mörkum með fimm mínútna millibili um miðjan seinni hálfleik. Þegar ein mínúta var til leiksloka kom Ryan Christie gestunum yfir eftir sendingu frá Marcus Tavernier. Í uppbótartíma fengu heimamenn vítaspyrnu sem Mateta tók og skoraði úr af öryggi, sitt þriðja mark. Hann fékk svo dauðafæri skömmu síðar en skaut yfir. Bournemouth er í 4. sæti deildarinnar með fimmtán stig en Palace í því áttunda með þrettán stig. Danny Welbeck er kominn með fjögur mörk í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.getty/Mike Hewitt Danny Welbeck var hetja Brighton gegn Newcastle United. Mávarnir unnu 2-1 sigur og komust þar með upp í 9. sæti deildarinnar. Newcastle er í 12. sæti deildarinnar með níu stig. Welbeck kom Brighton yfir þegar hann lyfti boltanum smekklega yfir Nick Pope á 41. mínútu. Nick Woltemade jafnaði með glæsilegri hælspyrnu á 76. mínútu en sex mínútum fyrir leikslok skoraði Welbeck annað mark sitt með skoti frá vítateigslínunni. Burnley vann nýliðaslaginn gegn Leeds United, 2-0. Lesley Ugochukwu og Loum Tchaouna skoruðu mörk Burnley sem er í 17. sæti deildarinnar með sjö stig, einu stigi á eftir Leeds sem er í 15. sætinu. Þá vann Sunderland 2-0 sigur á Wolves sem er áfram á botni deildarinnar og hefur ekki unnið leik. Nordi Mukiele og Ladislav Krejcí (sjálfsmark) skoruðu fyrir Sunderland sem er í 7. sæti deildarinnar með fjórtán stig.
Enski boltinn Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira