Lagaleg óvissa og kaupendur byrjaðir að fá nei frá bankanum Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 21. október 2025 10:07 Páll Pálsson fasteignasali. Vísir/Vilhelm Ákvörðun fjármálastofnana um að setja afgreiðslu umsókna um verðtryggð húsnæðislán á ís er þegar farin að hafa áhrif á fasteignamarkaðinn. Dæmi eru um að kaupendur sem höfðu þegar fengið samþykkt greiðslumat vegna fasteignakaupa hafi ekki fengið umbeðin lánagögn afhent þar sem bankinn sagði nei, auk þess sem fáar fyrirspurnir eru að berast fasteignasölum og léleg mæting á opin hús.
Þetta segir reyndur fasteignasali, sem telur að hjarðhegðun Íslendinga kunni einnig að spila inn í það að fólk haldi nú að sér höndum á fasteignamarkaði. Um 60% taka verðtryggð lán Arion banki, Landsbankinn og nokkrir lífeyrissjóðir hafa takmarkað afgreiðslu nýrra íbúðalána í kjölfar dóms Hæstaréttar þar sem ákveðnir lánaskilmálar Íslandsbanka er varða verðtryggð húsnæðislán voru dæmdir ólögmætir. Aðrar fjármálastofnanir eru einnig að velta fyrir sér stöðunni. Páll Pálsson fasteignasali segir ljóst að lagaleg óvissa sé uppi á fasteignalánamarkaði en hann væntir þess að málið verði leyst á allra næstu dögum. „Ég heyrði í félögum mínum innan bankakerfisins í gær og þetta er eitthvað sem er verið að leysa á næstu dögum. En það er bara staðan, ef þú ætlar að sækja um verðtryggt lán að þá er bara sagt nei,“ segir Páll, sem ræddi málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Spurður um áhrif þess ef það tæki lengri tíma að leysa úr málinu segir Páll ljóst að það myndi snerta marga, enda séu innan við 40% fasteignakaupenda á Íslandi að taka óverðtryggð lán. „Það eru um 60% sem eru að taka lán í dag eru að taka verðtryggð lán,“ segir Páll. Ástæðan fyrir því að svo hátt hlutfall leiti í verðtryggð lán sé til að ráða við mánaðarlegar afborganir á tímum hárra vaxta óverðtryggðra lána. „Þetta er alltaf betra heldur en til dæmis að vera á leigumarkaði. Þetta er aldrei fyrsti kostur, en í mörgum tilfellum er þetta kannski eini kosturinn,“ segir Páll. „Hugsanlega er þetta upphaf að einhverjum ákveðnum breytingum og bankarnir eru að hugsa þetta í rauninni allt upp á nýtt og það er lagaleg óvissa með þetta.“ Allt á bið en „færustu lögfræðingar landsins“ leita lausna Staðan sé þegar farin að valda truflunum á fasteignamarkaði og setja áform fólks um fasteignakaup í uppnám. „Við lentum sjálf í því í gær að fá fólk sem er að kaupa sér einbýlishús og voru að fara að leysa út og báðu um að fá send lánaskjölin til þess að fara í kaupsamning og það var bara sagt nei. Þannig það setur allt á hold,“ segir Páll. Það sé hans skilningur að það muni bara taka bankana örfáa daga að leysa úr málinu. „Það eru bara færustu lögmenn landsins sem eru að kafa ofan í þetta og eru að reyna að leysa þetta og auðvitað kemur alltaf einhver góð lausn. Ein lausn sem ég heyrði er að það færu bara allir í óverðtryggt, en náttúrlega ráða ekki við afborganirnar, og þá er kannski hluti af afborgun, sem sagt af vöxtunum greiddir í lok lánstímans,“ nefnir Páll sem dæmi. Þannig gæti fólk ef til vill ráðið við afborganir en vextir myndu safnast upp og bætast á höfuðstólinn. „Sérstakt“ að ekki hafi mátt afgreiða mál sem þegar voru samþykkt Hann telji tilefni til að hugsa kerfið allt upp á nýtt. „Auðvitað er þetta allt svolítið verðbólgutengt. Eftir því sem verðbólga er hærri því eru vextir hærri og allt þetta og við auðvitað viljum halda verðbólgunni eins lágri og hægt er. En þetta er bara staðan og verður þannig í einhverja daga. En það er mjög ólíklegt, var mér sagt, að þetta taki lengur en svona eina til tvær vikur þar til það kemur bara alvöru lausn,“ segir Páll. Þótt það komi sér illa að gripið hafi verið til þessa ráðs með svo gott sem engum fyrirvara eftir að dómurinn lá fyrir, hafi fátt annað verið hægt að gera í stöðunni. Ef til vill hefði mátt skoða að klára afgreiðslu lánaskjala í þeim málum þar sem fólk hafði verið búið að kaupa og hafi þegar fengið samþykkt greiðslumat og setja síðan nýjar umsóknir á bið. „Það finnst mér kannski sérstakt,“ segir Páll. „Þetta er bara lagaleg óvissa, þeir vita ekki hvað á að gera við þessi verðtryggðu lán, við hvað á að tengja þau.“
Húsnæðismál Fasteignamarkaður Fjármálafyrirtæki Dómsmál Mest lesið Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira