Endurgreiða viðskiptavinum sem mæta í skimun mánaðariðgjald Lovísa Arnardóttir skrifar 22. október 2025 20:28 Fríða Ásgeirsdóttir, Birkir Jóhannsson, forstjóri TM, og Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Anton Bjarni TM mun endurgreiða viðskiptavinum sínum einn mánuð í iðgjald sjúkdómatrygginga fari þeir í brjóstaskimun. Um er að ræða nýtt átak sem unnið er í samstarfi við Krabbameinsfélagið í þeim tilgangi að hvetja konur til að fara í skimun. 61 prósent kvenna á Íslandi mætti í brjóstaskimun í fyrra.
Þá hafði þeim fjölgað um níu prósent frá því árinu áður en náðu þó ekki landsmarkmiði sem er 75 prósent. Árlega greinast um 260 konur með brjóstakrabbamein en það er algengasta krabbameinið meðal kvenna á Íslandi. Í tilkynningu segir að mæting kvenna sé mismikil eftir landshlutum, aldri og uppruna og að samstarfinu sé ætlað að minnka þann mun. Til þess muni þau beita fjölbreyttum leiðum. Þá segir að TM og Krabbameinsfélagið muni jafnframt vinna saman að endurskoðun á skilmálum sjúkdómatrygginga til að tryggja að þau taki mið af þörfum þeirra sem greinast með krabbamein. Til að styðja við markmið átaksins mun TM endurgreiða einn mánuð af iðgjaldi sjúkdómatryggingar hjá viðskiptavinum sínum sem nýta boð í brjóstaskimun. Endurgreiðslan er á bilinu fimm til tíu þúsund krónur eftir því hvað fólk er með háa sjúkdómatryggingu og þar með iðgjald. Fram kemur í tilkynningu að nóg sé að senda kvittun um skimun á TM til að fá endurgreitt. Nánar hér. „Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein meðal kvenna hérlendis og sjáum við það greinilega í okkar tölum varðandi sjúkdómatryggingar. Það er sláandi hversu lágt hlutfall kvenna nýtir boð í skimun, sérstaklega þegar við berum okkur saman við tölur frá hinum Norðurlöndunum. Við hvetjum allar konur til að mæta þegar þær fá boð og vonum að þessi aðgerð skapi enn meiri hvata fyrir okkar viðskiptavini til þess. Við getum hækkað hlutfallið saman og þannig lækkað dánartíðni vegna brjóstakrabbameins,“ er haft eftir Birki Jóhannssyni, forstjóra TM, í tilkynningu. „Það er ánægjulegt að TM taki virkan þátt í að styðja við þetta forvarnarstarf og hvetji konur um allt land til að mæta í skimun, það getur raunverulega bjargað mannslífum,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Konur á aldrinum 40 til 74 sem hafa fengið boðsbréf í skimun fyrir brjóstakrabbameini geta pantað tíma hjá Brjóstamiðstöð Landspítala í síma 543-9560 milli kl. 9:30 og 15:30 alla virka daga. Brjóstamyndatakan fer fram á Brjóstamiðstöð, Eiríksgötu 5 í Reykjavík og á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Eyrarlandsvegi. Einnig er hægt að panta á vef Brjóstamiðstöðvarinnar eða senda fyrirspurn á netfangið brjostaskimun@landspitali.is. Brjóstaskimun er framundan á landsbyggð: Eskifjörður 20. - 24. október Hvolsvöllur 27. - 28. október Selfoss 3. - 14. nóvember Reykjanesbær 24. - 28. nóvember
Krabbamein Tryggingar Heilbrigðismál Skimun fyrir krabbameini Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum Einungis sjö bílar kallaðir inn Kaupmáttur heldur áfram að aukast Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Innkalla vegna aðskotahlutar Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Ölgerðin hækkar verðin Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Sjá meira