Klæddi sig upp sem hjákona eiginmannsins Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 3. nóvember 2025 10:31 Tónlistarkonan Lily Allen var að gefa út tímamótaverkið West End Girl og klæddi sig upp sem Madeline, hjákona fyrrum eiginmanns hennar, á Hrekkjavökunni. Rachpoot/Bauer-Griffin/GC Images Tónlistarkonan Lily Allen kann að semja lög sem vekja athygli og það má eiginlega að segja að breska listagyðjan sé að eiga rosalegustu tónlistarendurkomu ársins, jafnvel aldarinnar. Á nýjustu plötu sinni afhjúpar hún öll hjónabandsvandamálin, syngur um píkuhöll fyrrum eiginmannsins og hjákonu hans Madeline.
Platan West End Girl hefur vart farið fram hjá neinum sem er með puttann á púlsinum á dægurmenningunni en hún kom út 24. október síðastliðinn og hafa milljónir hlustað á hana. Blaðamaður hefur hlustað oft í gegn og platan er stórkostleg. Tilfinningin er svolítið þannig að þú situr á kaffihúsi nálægt einhverri frægri manneskju sem er að tala hátt um vandamálin sín og þér finnst hálf óþægilegt hvað þú heyrir mikið. View this post on Instagram A post shared by Lily Allen (@lilyallen) Lily Allen gefur ekkert eftir, skefur ekkert af hlutunum og er ekkert að passa sig að ganga ekki of langt. Hún gengur alla leið. Platan er ferðalag í gegnum hjónaband hennar og Stranger Things-leikarans David Harbour, sem kemur ekki æðislega út úr þessum lögum. Hann virðist hafa beðið um opið samband, Lily hikandi samþykkt og þau sett ákveðnar reglur í kringum það sem hann svo braut ítrekað. Eftir situr hún algjörlega brotin og vinnur sig í gegnum þetta með tónlistinni. Brjálaðar vinsældir plötunnar hljóta að hjálpa henni í gegnum þetta. Platan flæðir ótrúlega vel í gegn og er eins og átakanleg rómantísk gamanmynd sem hlustandi sýgst inn í. Uppbyggingin er algjör snilld og í laginu Tennis kemur fram að Harbour hafi verið að halda við konu sem hann var líka að spila tennis með. Lagið flýtur inn í næsta lag sem heitir Madeline eftir hjákonunni. Þar kemur fram að samkomulag hjónanna hafi verið eftirfarandi: Bara inni á hótelherbergjum, engin samskipti utan kynlífsins, það yrði að vera með kynlífsverkafólki eða allavega að borga fyrir kynlífið og það yrði að vera með ókunnugum. En Madeline var ekki ókunnug og syngur Lily það aftur og aftur. „En þú ert ekki ókunnug Madeline.“ Það er ekki alveg ljóst hver Madeline er og það er líka smá spennandi að hafa örlitla dulúð í kringum það. Lily Allen klæddi sig upp sem Madeline, sem er nafn á hjákonu David Harbour fyrrum eiginmanns Lilyar., MEGA/GC Images Lily er svo hnyttin týpa og tekur sjálfri sér ekki of alvarlega. Á Hrekkjavökunni um helgina ákvað hún auðvitað að klæða sig upp sem barnabókarkarakter sem heitir líka Madeline og vakti það mikla lukku meðal netverja.
Tónlist Tíska og hönnun Hollywood Mest lesið Fékk hvorki að setja eigið nafn né dulnefni á þættina sína Lífið Klæddi sig upp sem hjákona eiginmannsins Tíska og hönnun Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Menning Svona er kynlífsþjónusta á Íslandi Lífið Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Menning Stjörnulífið: „Ef fólk hættir að gagnrýna mig svelt ég“ Lífið Leikstýrir kærastanum í stærsta harmleik sögunnar Lífið Dagur Sig genginn í það heilaga Lífið Hefur farið í gegnum sambandsslit, gjaldþrot og fjárkúgunarmál frammi fyrir þjóðinni Lífið Ljúffengir hafraklattar með kaffinu Lífið Fleiri fréttir Klæddi sig upp sem hjákona eiginmannsins Telur Sweeney hafa verið blekkta í kjólinn Níu tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Sjóðheitt fyrir snjóstorm Skein skært í sögulegum gleðikonukjól Aldrei of seint að prófa sig áfram Dannaðar dömur mættu með dramað „Nú dýrka ég að vera vaxin eins og fæðing Venusar“ Hiti í Hringekjunni Virtist hvorki geta séð né andað Sænskur og sjóðheitur undir áhrifum BDSM Kasóléttur forystusauður, ungstirni og engilfagrar kanónur „Bíður bara inni í skáp eftir brúðkaupinu“ Betra sem hárbindi en tagl í Bríeti Léti aldrei sjá sig í ökklasokkum Gelluorkan í hæstu hæðum hjá Ginu Heitir pabbar í hlaupaklúbbi Skilnaðar-toppur í París Fann ástina í örlagaríkum kjól Sjá meira