Jensens Bøfhus lokað Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. nóvember 2025 11:15 Jólabangsar fyrir utan Jensens Bøfhus. Íslendingar sem sækja Danmörku heim á aðventunni verða að fá sér buff einhvers staðar annars staðar. Jensens Bøfhus Veitingakeðjan Jensens Bøfhus hefur lokað öllum sínum veitingastöðum í Danmörku. Þetta kemur fram í frétt viðskiptamiðilsins Børsen. Keðjan var með fimmtán veitingastaði í rekstri en hafði glímt við rekstrarerfiðleika. Staðirnir hafa notið nokkurra vinsælda meðal Íslendinga.
Keðjan hefur verið seld til samkeppnisaðilans Bones sem rekur ameríska veitingastaði í Danaveldi. Bones hyggst áfram reka veitingastaði en með nýjum hugmyndum og stefnu. „Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að við getum ekki lengur gert Jensens Bøfhus að farsælu fyrirtæki,“ segir Mikkel Hammershøj, framkvæmdastjóri í eignarhaldsfélagi milljarðamæringsins Torben Østergaard-Nielsens við Børsen. Torben var ásamt Georg Gundersen eigandi Jensens Bøfhus þar til samningur við Bones var undirritaður í nótt. „Nú höfum við fundið lausn sem við treystum og sem tryggir mörg störf,“ segir Hammershøj. Samkvæmt TV2 verður þó áfram hægt að kaupa Jensens-sósurnar, þar sem sá hluti rekstursins, Jensens Køkken, var seldur Stryhns Gruppen árið 2016. Fyrsta buffhús Jensens var opnað af Palle Skov Jensen árið 1984 en þá undir nafninu Bøf España.
Danmörk Veitingastaðir Mest lesið „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira