Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Árni Jóhannsson skrifar 7. nóvember 2025 22:00 DeAndre Kane er algjör lykilmaður hjá Grindavík. vísir/Anton Grindavík vann tólf stiga sigur gegn Keflavík í kvöld, 104-92, í leik sem þó var afar spennandi lengst af. Grindvíkingar eru því einir á toppi Bónus-deildar karla í körfubolta með fullt hús stiga eftir sex umferðir. Leikurinn byrjaði af miklum krafti. Bæði lið hittu vel og það var ekki fyrr en eftir nærrum því fjórar mínútur að skot fóru að klikka hjá báðum liðum. Þá náðu Keflvíkingar undirtökunum og komust í meira en tveggja körfu forskot en Grindvíkingar voru fljótir að ná því til baka og komast yfir. Fyrsti leikhluti endaði í stöðunni 27-25 fyrir heimamenn. Keflvíkingar voru ekki nógu skynsamir í sínum aðgerðum og Grindvíkingar gengu á lagið og áður en við var litið var munurinn orðinn 13 stig fyrir Grindavík og þeir litu út fyrir að ætla að hlaupa í burtu með leikinn. Keflvíkingar náðu vopnum sínum en misstu þau aftur en þó ekki langt frá sér. Staðan 53-47 fyrir Grindavík og ekkert ráðið þegar 20 leikmínútur voru eftir. Aftur byrjuðu liðin á háu tempói í sóknarleiknum og beðið var eftir því að liðið tækju við sér í varnarleiknum. Grindavík hélt forskotinu en Keflavík náði að jafna undir lok þriðja leikhlutans í 72-72 en DeAndre Kane var ekki á því að hleypa þessu upp í einhverja vitleysu setti niður þrist og Grindavík var með forskot fyrir lokaátökin. Staðan 75-73. Grindavík náði aftur frumkvæðinu og komst yfir 84-76 og aftur virtist það vera þannig að Grindavík væri að klára en þá fóru Keflvíkingar að hitta betur og nöguðu muninn aftur niður en náðu ekki að komast yfir hólinn sem hafði skapast. Khalil Shabazz, Deandre Kane og Ólafur Ólafsson tóku til sinna ráða í lok leiksins og hver stór aðgerðin rak aðra þegar Keflavík hafði náð muninum niður í eina körfu og úr varð 104-92 sigur Grindvíkinga. Þeir neita að tapa körfuboltaleikjum þennan veturinn. Atvik leiksins Ólafur Ólafsson setti niður þrist þegar minna en mínúta var eftir og kom muninum í 10 stig. Skotið rúllaði lengi á hringnum en fór niður. Klassískt atvik hjá Óla Óla. Steindrap leikinn og ærði aðdáendur Grindavíkur. Stjörnur og skúrkar Þetta var frábær leikur. Minnti á úrslitakeppni og bæði lið léku vel á löngum köflum. Deandre Kane lauk leik með 24 stig, 10 stoðsendingar og átta fráköst. Hann átti stór augnablik allan leikinn eins og Ólafur sem endaði með 20 stig. Umgjörð og stemmning HS Orku höllin er byggð fyrir þessa leiki. Það var rosaleg stemmning og ég heyrði hjá vallarstarfsmanni að 1000 manns hafi verið á leiknum og á tímabili ætluðu eyrun að rifna af blaðamanni sökum hávaða. Meira af þessu takk. Dómarar leiksins Sigmundur Már Herbertsson, Davíð Kristján Hreiðarsson og Birgir Örn Hjörvarsson sáu um framkvæmd leiksins. Þeim var kannski vorkunn að lenda á þessum leik en það var enginn ánægður með störf þeirra í kvöld. Línan var skrýtin og fór það í taugarnar á öllum viðkomandi. Það skipti kannski ekki máli en það mátti litlu muna að tök þeirra á leiknum væru engin. Bónus-deild karla Grindavík Keflavík ÍF