Mikael ekki með í leikjunum mikilvægu og Logi er lasinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. nóvember 2025 13:36 Mikael Neville Anderson verður ekki með en vonast er til að Logi Tómasson geti spilað. vísir Mikael Neville Anderson verður ekki með íslenska landsliðinu í leikjunum gegn Aserbaísjan á morgun og Úkraínu á sunnudag. Logi Tómasson hefur verið að glíma við veikindi en vonir eru bundnar við að hann verði klár í slaginn á morgun.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson greindi frá þessu á blaðamannafundi í hádeginu. Hann sagði Mikael Neville ekki hafa komið til móts við hópinn í Aserbaísjan, hann hafi orðið eftir í Svíþjóð, þar sem hann spilar með liði Djurgarden, og mun gangast undir frekari rannsóknir á meiðslunum þar í landi. „Við ákvaðum að skilja hann eftir í Svíþjóð svo hann gæti farið í MRI myndatöku, við vildum gefa honum allan séns til að ná þessum mikilvægu leikjum en því miður fengum við þær fréttir áðan að hann sé ekki í standi til að koma til móts við okkur.“ Arnar sagði líklegt að leikmaður yrði tekinn inn í hópinn í stað Mikaels, en það yrði ekki gert fyrr en eftir leikinn gegn Aserbaísjan á morgun. Þá kemur auðvitað líka í ljós hvort einhverjir aðrir leikmenn forfallist og fleiri breytingar þurfi að gera. Arnar sagði einnig frá því að vinstri bakvörðurinn Logi Tómasson hefði verið að glíma við veikindi. „Logi er búinn að vera smá lasinn, en ætti að vera klár á morgun“ sagði landsliðsþjálfarinn. Teymi Sýnar mun fylgja okkar mönnum eftir hvert fótmál framyfir leikina gegn Aserbaísjan og Úkraínu. Leikurinn gegn Aserbaísjan hefst klukkan 17:00 á morgun og verður sýndur í opinni dagskrá á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta HM 2026 í fótbolta Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Sjá meira