Paramount, Comcast og Netflix vilja kaupa Warner Samúel Karl Ólason skrifar 14. nóvember 2025 12:05 Warner Bros. Discovery rekur meðal annars kvikmynda- og sjónarvarpsþáttatökuver. EPA/CAROLINE BREHMAN Forsvarsmenn þriggja af stærstu skemmtanaafurðafyrirtækjum Bandaríkjanna eru sagðir undirbúa kauptilboð í Warner Bros. Discovery. Fresturinn til að leggja fram tilboð í félagið rennur út þann 20. nóvember en stjórn Warner lýsti því yfir að félagið væri til sölu í heild sinni en einnig væri unnið að því að skipta því upp í tvo hluta.
Um er að ræða fyrirtækin Paramount Skydance, Comcast (sem á meðal annars NBC) og Netflix. Stjórn Warner vonast til þess að hægt verði að ljúka tilboðaferlinu fyrir áramót, samkvæmt heimildum Wall Street Journal. Paramount, sem er stýrt af David Ellison, vill kaupa allt fyrirtækið í heild sinni. Comcast og Netflix vilja eingöngu kaupa kvikmynda- og sjónvarpsþáttaver fyrirtækisins og streymisveituna HBO Max. Eftir að stjórnendur Paramount reyndu fyrst að sameinast við WBD virtist sem síðarnefnda félagið væri ekki til sölu. WBD rekur sjónvarpsstöðvar eins og CNN, Discovery, TNT HBO og fleiri auk þess sem það rekur kvikmyndatökuver og streymisveituna HBO Max, svo eitthvað sé nefnt. Eftir að Warner Bros. og Discovery Inc. sameinuðust árið 2022 hefur fyrirtækið verið í kröggum vegna umfangsmikilla skulda eftir sameininguna. Verulega hefur verið dregið úr kostnaði hjá félaginu og hefur tekist að lækka skuldir töluvert. Staða sumra sjónvarpsstöðva félagsins hefur þó vakið áhyggjur hjá fjárfestum. Þess vegna var farið í það að skipta félaginu upp í tvo hluta. Annar hlutinn næði yfir kvikmynda- og sjónvarpsþáttaverin, auk HBO Max. Hinn yrði myndaður utan um sjónvarpsstöðvarnar. Stjórnendur WBD höfnuðu nokkrum tilboðum frá Paramount og lýstu því svo í kjölfarið yfir að félagið væri til sölu. WSJ segir að stjórnendur Paramount og Comcast telji að með því að koma höndum yfir eignir WBD verði fyrirtækin í betri stöðu til að berjast gegn öðrum og stærri fyrirtækjum eins og Netflix og Amazon. Paramount og Comcast eru ekki lítil fyrirtæki en þeim hefur gengið illa í samkeppninni á sviði streymisveitna. Stjórnendur Netflix eru sagðir vilja koma höndum yfir risastórt verkasafn WBD og bæta þannig framboð á streymisveitunni til muna. Þó að vasar Netflix séu taldir mjög djúpir þykja líkur fyrirtækisins til að fá samruna við WBD samþykktan af ríkisstjórn Donalds Trump ekki miklar. Reed Hastings, annar stofnanda Netflix, var ötull stuðningsmaður Kamölu Harris, mótframbjóðanda Trumps í forsetakosningunum í fyrra. Svipaða sögu er að segja af Comcast en Trump hefur lengi verið mjög gagnrýninn á fyrirtækið og umfjöllun um sig á miðlum þess. Forsvarsmenn fyrirtækisins gáfu nýverið peninga til byggingar veislusals Trumps við Hvíta húsið. Sjá einnig: Segir Fallon og Meyers næsta: „Gerið þetta NBC!!!“ Forsvarsmenn Paramount Skydance telja sig í bestri stöðu til að fá samrunann samþykktan en fyrirtækið var nýlega myndað úr samruna fyrirtækjanna Paramount og Skydance, eftir að Paramount greiddi Trump bætur vegna viðtals fréttaskýringarþáttarins 60 mínútna við Harris í aðdraganda kosninganna.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Netflix Streymisveitur Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Spá þriggja prósenta verðbólgu á næsta ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sky ætlar að festa kaup á ITV Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira