Sjáðu Barry vinna fjórtán skallaeinvígi gegn Man. Utd og setja met Sindri Sverrisson skrifar 27. nóvember 2025 16:45 Thierno Barry var sjálfsagt næstum kominn með hausverk á mánudaginn eftir alla skallana. Getty/James Gill Everton-maðurinn Thierno Barry setti met í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð, þegar hann vann heil fjórtán skallaeinvígi gegn Manchester United á mánudagskvöld.
Hér að neðan má sjá hvernig Barry fór með United-menn í skallaeinvígum á Old Trafford sem eflaust hjálpaði til við að tryggja Everton sigur. Klippa: Barry og skallarnir fjórtán gegn Man. Utd Luke Shaw, Patrick Dorgu og Matthijs de Ligt áttu allir í erfiðleikum með Barry í loftinu og náði þessi 23 ára franski sóknarmaður sífellt að teygja sig ofar en þeir og skalla boltann. Everton-menn voru líka heilt yfir mun baráttuglaðari í leiknum, jafnvel um of þegar Idrissa Gueye fékk rautt spjald fyrir að slá liðsfélaga sinn Michael Keane, og uppskáru dísætan 1-0 sigur sem kom þeim upp fyrir Liverpool og upp að United á stigatöflunni. Everton keypti Barry frá Villarreal í sumar og samdi við hann til fjögurra ára. Hann á enn eftir að skora sitt fyrsta mark fyrir bláa liðið og hefur reyndar ekki enn átt skot á mark, í tólf deildarleikjum, eftir að hafa kostað 27 milljónir punda. Hann lofaði því í færslu á samfélagsmiðlum eftir leikinn á mánudag að það styttist í fyrsta markið. David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, sagði Barry á réttri leið í að verða sá framherji sem Everton vantar. „Hann er á réttri leið. Mér fannst hann leiða línuna vel á margan hátt. Tölurnar hans eru alltaf háar og við þurftum enn meira á því að halda núna. Svo já, ég er ánægður. Ég vil samt enn fá mörk frá honum, það er auðvitað það sem framherjar eru dæmdir út frá. En hann lagði afskaplega hart að sér,“ sagði Moyes.
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Felldi tár og sendi fingurkoss til himna Sport Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira