Segir að Dorgu sé að farast úr stressi í hvert sinn sem hann fær boltann Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. nóvember 2025 10:48 Patrick Dorgu hefur átt misjafna leiki síðan hann kom til Manchester United frá Lecce. getty/James Gill Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, segist finna fyrir stressinu hjá Patrick Dorgu í hvert einasta sinn sem Daninn fær boltann.
Dorgu var fyrsti leikmaðurinn sem Amorim keypti til United. Hann kom frá Lecce á Ítalíu fyrir 25 milljónir punda í febrúar og hefur átt misjöfnu gengi að fagna með United. Amorim segir að Dorgu sé greinilega stressaður þegar hann spilar fyrir United, öfugt við það þegar hann klæðist búningi danska landsliðsins. „Þegar ég sé Patrick spila með landsliðinu, hann skoraði frábært mark gegn Skotlandi og ákvörðunin sem hann tók undir pressu þar var algjörlega á skjön við ákvarðanirnar sem hann tekur í okkar liði,“ sagði Amorim. „Ég finn fyrir stressinu í hvert einasta sinn sem hann snertir boltann. Ég finn það, stressið.“ Sem dæmi um þetta nefndi Amorim færið sem Dorgu klúðraði í tapinu fyrir Everton, 0-1, á mánudaginn. „Ég man eftir skotinu gegn Everton. Það var auðveldara en ákvörðunin sem hann þurfti að taka gegn Skotlandi og ég sá hversu góður hann var þegar hann spilaði á Ítalíu,“ sagði Amorim. „En þetta er öðruvísi hérna hjá United og stundum leikur pressan menn grátt í byrjun en hann hefur tíma til að bæta sig.“ Dorgu, sem er 21 árs, hefur leikið 32 leiki fyrir United, þar af tólf á þessu tímabili. Manchester United mætir Crystal Palace á Selhurst Park í dag. Leikurinn hefst klukkan 12:00 og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Enski boltinn Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira