Böngsum mun rigna á Króknum á föstudaginn Sindri Sverrisson skrifar 3. desember 2025 15:30 Bangsakast þekkist víða erlendis á íþróttaviðburðum, þegar blásið er til söfnunar fyrir góðgerðasamtök fyrir börn. Getty/Bruce Bennett Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur ákveðið að leikur liðsins við ÍA í Bónus-deild karla í körfubolta á föstudaginn verði styrktarleikur fyrir Einstök börn. Allir sem mæta með bangsa eða kaupa bangsa á staðnum fá frítt á leikinn.
Greint er frá þessu á Facebook-síðu Tindastóls þar sem fram kemur að þegar Tindastóll skorar sína fyrstu þriggja stiga körfu á föstudaginn verði öllum böngsum kastað inn á völlinn, líkt og þekkist erlendis og í öðrum íþróttagreinum. Leikmenn Tindastóls munu svo gefa Einstökum börnum á Norðurlandi bangsana í Síkinu eftir leik, og svo á Akureyri á laugardaginn, en nánari upplýsingar um viðburðinn verða veittar síðar í vikunni. Einstök börn er, eins og fram kemur á heimasíðu félagsins, stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni og fjölskyldna þeirra. Félagið var stofnað 13. mars 1997 af foreldrum nokkurra barna en nú eru hátt í 900 fjölskyldur í félaginu eða um rétt um 2400 foreldrar og stjúpforeldrar. Leikur Tindastóls og ÍA hefst klukkan 19:15 á föstudaginn. Stólarnir steinlágu gegn taplausu toppliði Grindavíkur í síðustu umferð og eru því fjórum stigum frá toppnum en nýliðar ÍA eru í 8. sæti eftir átta umferðir, sex stigum á eftir Tindastóli.
Bónus-deild karla Tindastóll Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Sjá meira