„Ég er mjög stoltur af mínum leikmönnum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2025 22:30 Mikel Arteta talks talar við leikmennina sína Myles Lewis-Skelly, Noni Madueke og Piero Hincapie í kvöld. Getty/ Stuart MacFarlane Arsenal náði fimm stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á Brentford í kvöld. Knattspyrnustjórinn Mikel Arteta var sáttur í leikslok. „
Þetta er alltaf óþægilegt því Brentford þarf bara innkast og þá er allt komið í uppnám og ævintýri. Eitt núll er aldrei nóg á móti þeim en mér fannst við stjórna leiknum og skapa stærstu færin,“ sagði Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, í samtali við Sky Sports: „Á heildina litið er ég mjög ánægður. Vikan sem við áttum, þremur dögum síðar án nokkurrar endurheimtar, að gera þetta aftur, ég er mjög stoltur af leikmönnunum,“ sagði Arteta. „Ég hef ekki skoðað hana aftur en þetta leit út fyrir að vera góð viðbrögð og virkilega mikilvæg. Markvörðurinn þeirra varði líka mjög vel. En þetta er það sem maður þarf. Á lykilaugnablikum þurfa leikmennirnir okkar að gera það sem þeir þurfa að gera og við höfum svo sannarlega gert það,“ sagði Arteta um markvörslu David Raya á lykilstundu í leiknum. Arteta var spurður út í það hvort hann væri að ná því besta út úr liðinu þínu: „Já, sérstaklega með öll þessi meiðsli sem við erum enn með. Við misstum Saliba, við misstum stóra Gabby, í dag misstum við Mosquera. Þetta hefur verið áskorun. Ben White var frábær í dag. Allir sem fá tækifæri standa sig,“ sagði Arteta. Um meiðsli Rice og Mosquera, og hvort Saliba verði klár fyrir leikinn gegn Aston Villa á laugardag, sagði hann: „Við vitum meira á morgun. Þeir þurfa að fara í skoðun. Declan þurfti að fara af velli... við skulum sjá hverjir verða leikfærir,“ sagði Arteta. Mikel Merino skoraði mikilvægt mark snemma leiks sem gerði mikið fyrir Arsenal í kvöld. „Það er ótrúlegt hvað hann gerði aftur í dag. Ekki bara markið, því markið er stórkostlegt. Hreyfingin, gæðin, afgreiðslan, hvernig hann tímasetur þetta og svo vinnusemin. Það er stórkostlegt,“ sagði Arteta.
Enski boltinn Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira