Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 4. desember 2025 07:47 Yuval Raphael söng langið New day will rise í Eurovision 2025 og lenti í öðru sæti. Vísir/EPA Við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, blasir barátta fyrir framtíð keppninnar á fundi sem markar „vatnaskil“ sem hefst í Genf í Sviss í dag. Svo er því lýst í umfjöllun BBC í dag en viðbúið er að örlög Ísrael í keppninni verði ráðin á fundinum. Ísland er meðal þeirra ríkja sem hefur sett fyrirvara um þátttöku í keppninni þar til fyrir liggur niðurstaða um hvað skal gera vegna Ísrael.
Skipuleggjendur og þátttökuríki munu ræða hvort Ísrael fái að halda áfram að vera með keppninni, nokkuð sem kallað var eftir samtali um vegna framgöngu ísraelskra stjórnvalda í stríðinu á Gasa, og vegna ásakana um ósanngjarnt framferði í stigakosningu. Enn óvíst með þátttöku Íslands Lönd á borð við Spán, Írland, Holland og Slóveníu hafa hótað að sniðganga Eurovision ef Ísrael tekur þátt. Á móti hafa Þjóðverjar gefið í skin að þeir muni ekki taka þátt ef Ísrael verður meinað að taka þátt. Stjórn Rúv er þeirrar skoðunar að vísa eigi Ísrael úr keppni en ekki liggur ennþá fyrir hvort Ísland verði með ef Ísrael verður með. Lagt er upp með að ef þátttökuríkin telja tillögu EBU um hertar reglur um símakosningu ófullnægjandi verði greidd atkvæði um þátttöku Ísraels. Fram kemur í umfjöllun BBC í dag að tveir hafi gert tilraun til að ráðast inn á sviðið og sletta málningu yfir Yuval Raphael, fulltrúa Ísrael í keppninni í ár, á meðan hún flutti framlag landsins þegar keppnin fór fram í Basel á síðasta ári. Þá höfðu geysað gríðarleg mótmæli víða um álfuna vegna harkalegrar framgöngu Ísraelshers á Gasa, en sjálf lifði Rapheal af hryðjuverkaárás Hamas í Ísrael í október 2023. Hyggjast taka á óeðlilegri hegðun í kosningabaráttu Hún hafnaði í öðru sæti keppninnar í ár með næst flest heildarstig, en vann sannfærandi sigur í símakosningunni. Árangurinn í símakosningunni varð kveikjan að frekari gagnrýni þar sem Ísrael var sakað um að beita brögðum til að tryggja sér atkvæði í símakosningunni. Þannig voru ísraelsk stjórnvöld sökuð um að hafa blásið upp fylgi við framlagið með umfangsmikilli og kostnaðarsamri auglýsingaherferð sem beindist gegn íbúum Evrópu. Ísraelsk stjórnvöld hafa ekki svarað fyrir ásakanirnar en hafa haldið því fram að þau sæti alþjóðlegri rógsherferð. Síðan hefur Samband evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, boðað hertari reglur um símakosningu. Með því vonuðust skipuleggjendur keppninnar til þess að áhyggjur þátttökuríkja af hegðun keppinauta í símakosningu yrðu úr sögunni. Tillagan verður lögð fyrir aðildarríki EBU í dag. Ef aðildarríkin telja aðgerðirnar ekki fullnægjandi verða greidd atkvæði um framtíð Ísraels í keppninni. Líklegt þykir að ef af slíkri atkvæðagreiðslu verði muni niðurstaðan verða Ísrael í hag. Og ef svo fer er útlit fyrir að nokkur af rótgrónustu þátttökuríkjum í Eurovision sniðgangi keppnina á næsta ári, þar á meðal Írland sem er sigursælasta ríkið í keppninni, og Spánn sem er eitt af hinum stóru sem eiga öruggt sæti í úrslitakeppninni.
Eurovision Átök í Ísrael og Palestínu Sviss Eurovision 2026 Ísrael Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Fleiri fréttir Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Sjá meira