Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Ísrael tók á móti Írlandi í B-deild Þjóðadeildarinnar og þurfti leikurinn að vera spilaður í Ungverjalandi vegna átaka í ríkjum í kringum Ísrael. Írland var mun betri aðilinn í leiknum og vann leikinn 3-0. Fótbolti 27.9.2026 18:16
Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og formaður HaTziyonut HaDatit, segist vilja að Ísraelar fari í stríð á Vesturbakkanum, leysi Palestínustjórnina upp og beiti þar sambærilegum hernaðaraðferðum og á Gasaströndinni. Hann segist jafnframt vilja innlima hluta Gaza og landsvæði í Líbanon allt norður að Litani-fljóti. Erlent 27.9.2026 12:48
Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Shlomi Barzel, samskiptastjóri ísraelska knattspyrnusambandsins, neitaði að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Hallgrímsson, landsliðsþjálfara Írlands, sem hann birti á samfélagsmiðlum ísraelska knattspyrnusambandsins. Fótbolti 27.9.2026 11:45
Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Tugir fulltrúa ríkja á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gengu úr salnum þegar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels steig í ræðustól í New York í dag. Forsætisráðherrann lét sér fátt um finnast og kallaði fulltrúana siðferðislega hugleysingja. Erlent 24. september 2026 21:08
Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Í nánast þrjú ár hefur ríkisstjórn síonista í Ísrael framið þjóðarmorð á Gaza. Alþjóðalög eru brotin daglega af ógnargrimmum her ríkis síonista, með kerfisbundnum árásum á óbreytta borgara, vísvitandi og markvisst er skotið á börn. Þá er heilbrigðisstarfsfólk, hjálparstarfsmenn og blaðamenn drepin markvisst. Fólk er sprengt, skotið, brennt, limlest og beitt andlegum og líkamlegum pyntingum. Skoðun 24. september 2026 09:32
Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Leikmenn írska karlalandsliðsins í fótbolta munu funda saman á morgun um það hvernig þeir nálgist leikinn, og allt í kringum hann gegn Ísrael um komandi helgi. Mikil andstaða er gegn því að leikurinn fari fram á Írlandi. Fótbolti 24. september 2026 08:32
Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Hollendingar snúa aftur í Eurovision árið 2027 eftir að hafa sniðgengið síðustu keppni vegna þátttöku Ísraela. Írska ríkisútvarpið heldur sniðgöngu sinni áfram en Rúv hefur enn ekki ákveðið hvort Íslendingar muni taka þátt. Innlent 23. september 2026 19:30
Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Heimir Hallgrímsson segir öll þau sem standa að írska landsliðinu vera þakklát fyrir stuðninginn sem þau finna nú fyrir en mikil ólga ríkir fyrir komandi leiki liðsins gegn Ísrael í Þjóðadeild UEFA. Fótbolti 23. september 2026 09:43
Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Forsætisráðherra Írlands segir að ísraelska knattspyrnusambandið ætti að taka athugasemdir sem sambandið gerði við Heimi Hallgrímsson til baka. Fótbolti 22. september 2026 22:08
Erfið og leiðinleg staða fyrir Heimi að vera í Pólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni. Sport 22. september 2026 12:45
Öll spjót beinast að Írum og Heimi Heimir Hallgrímsson dansar erfiðan línudans þessa dagana vegna komandi leikja Írlands við Ísrael í Þjóðadeildinni í fótbolta. Undirskrifalistar, mótmæli og harðorð viðtöl við fyrrum landsliðsmenn eru meðal þess sem blasir við í írskum fjölmiðlum. Fótbolti 22. september 2026 09:00
Mótmæli fyrir utan liðshótel lærisveina Heimis Mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan hótelið sem írska landsliðið dvelur nú á fyrir fyrstu leiki sína í Þjóðadeild UEFA og hvöttu landsliðið til þess að spila ekki við Ísrael. Fótbolti 22. september 2026 07:32
Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Ísraelska knattspyrnusambandið hefur kallað Heimi Hallgrímsson, þjálfara írska landsliðsins í fótbolta, heimskan vegna athugasemda hans um þjóðarmorðið á Gaza. Fótbolti 21. september 2026 20:17
Draga verulega úr umfjöllun um leiki Írlands við Ísraels Írska ríkisjónvarpið mun draga úr stærð umfjöllunar sinnar fyrir komandi leiki írska landsliðsins gegn Ísrael í Þjóðadeild UEFA. Fótbolti 21. september 2026 09:00
Sheeran bað aðdáendur afsökunar Ed Sheeran bað aðdáendur sína afsökunar á því að hafa gert „mistök“ þegar hann hélt sína fyrstu tónleika eftir að rapparinn Macklemore var rekinn af tónleikaferð hans fyrir að lýsa yfir stuðningi við Palestínu á tónleikum þegar hann hitaði upp fyrir Sheeran. Tónlist 20. september 2026 11:28
Heimir ræddi við hvern einasta leikmann um leikina við Ísraela Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Írlands segir að leikmenn liðsins séu ekki sáttir við að þurfa að mæta Ísrael í komandi leikjum í Þjóðadeildinni. Írland og Ísrael mætast tvisvar á næstu vikum en báðir leikirnir fara fram á hlutlausum vettvangi. Fótbolti 17. september 2026 17:15
Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Írska ríkissjónvarpið, RTÉ, hefur staðfest að Írland muni ekki taka þátt í Eurovision í ár og að þau muni heldur ekki sýna keppnina á sjónvarpsstöð sinni. Írar tóku ekki þátt í Eurovision í fyrra eins og Ísland, Holland og Spánn. Tónlist 17. september 2026 12:31
Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Tónlistarmaðurinn Macklemore tilkynnti í gær að hann ætlaði að láta allan ágóða af tónleikaferðalagi sínu með Ed Sheeran, um eina milljón dollara, renna til neyðaraðstoðar á Gasa. Hann skoraði á sama tíma á Robert Kraft, eiganda New England Patriots, sem krafðist þess að hann yrði fjarlægður af tónleikaferðalagi Sherrand, að gefa sömu upphæð til neyðaraðstoðar á Gasa og Vesturbakkanum. Lífið 17. september 2026 08:21
Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Macklemore segir Ed Sheeran hafa verið beittan þrýstingi af Roberti Kraft og öðrum bandarískum leikvangaeigendum sem varð til þess að Sheeran sparkaði rapparanum af tónleikaferðalagi sínu. Pólitísku hlutleysi Sheerans hefði loksins verið ögrað og hann ekki þorað að velja sér hlið. Þegar kæmi að Palestínu væri hlutleysi afstaða og Sheeran væri þar með að taka afstöðu gegn hinum undirokuðu. Lífið 15. september 2026 11:23
Sniðgöngum öll Þriðjudaginn 8. september tilkynntu ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands og Kanada að þau myndu innleiða innflutningsbann á allar vörur sem framleiddar væru á því sem oft er kallað hernumdu svæðin í Palestínu. Skoðun 10. september 2026 12:30
Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Ísraelsk stjórnvöld ætla að banna ellefu breskum þingmönnum að koma til landsins og láta loka bresku ræðisskrifstofunni í Jerúsalem. Það er hluti af svari þeirra var refsiaðgerðum Breta gegn landtökubyggðum gyðinga á hernumndum svæðum Palestínumanna. Erlent 9. september 2026 08:15
Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans, segir stöðuna skelfilega á Gasa í dag og hún versni bara. Hann segir ekki þörf á meira fjármagni eða hjálpargögnum en kallar eftir því að Ísland, og alþjóðasamfélagið allt, þrýsti á Ísrael að hleypa Rauða krossinum inn á Gasa með hjálpargögn og fólki út sem þarf á læknisaðstoð að halda. Al-Khatib segir stöðuna ekkert betri þó svo að samið hafi verið um vopnahlé á svæðinu í október í fyrra. Innlent 9. september 2026 06:46
Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Bretar, Frakkar og Kanadamenn ætla beita ólöglegar landtökubyggðir gyðinga á palestínsku landi refsiaðgerðum. Bandarísk stjórnvöld hafa hótað að refsa Bretum fyrir aðgerðirnar. Erlent 8. september 2026 13:16
Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Tvenn palestínsk ungmenni voru drepin af ísraelskum landnemum og hermönnum í árás á þorp þeirra á hernumda Vesturbakkanum í gær. Þetta segja ráðamenn á svæðinu. Erlent 3. september 2026 16:35