Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 13. desember 2025 12:06 Hermann Hauksson hefur sjaldan séð annað eins og varnarleik Álftaness í gærkvöldi sýn skjáskot Álftanes var flengt fastar en nokkuð annað lið í sögu efstu deildar karla í körfubolta þegar Tindastóll kom í heimsókn í gærkvöldi.
Stólarnir settu fjölmörg met þegar þeir skoruðu 137 stig gegn aðeins 78 stigum heimaliðsins. Sigurinn var sá stærsti, stigin voru þau flestu og Stólarnir gerðu þetta allt saman á útivelli. „Þetta er ótrúlegt“ sagði Stefán Árni Pálsson þegar hann skoðaði sóknartölfræði Tindastóls, sem skoraði úr tuttugu þriggja stiga skotum. Benedikt Guðmundsson, þjálfari Tindastóls á síðasta tímabili og núverandi sérfræðingur Körfuboltakvölds, vildi þó ekki meina að það hafi verið hittni Stólanna fyrir utan sem drap Álftirnar á Nesinu í gær. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Tindastóll skorar úr tuttugu þristum og þegar það gerist fá hin liðin oftast svona hundrað stig á sig. En í kvöld voru Stólarnir bara að komast, trekk í trekk, á körfuna og skrúfa hann þægilega ofan í. Enginn að pressa á þá, þannig að þeir voru troðandi og að leggja boltann ofan í hvað eftir annað. Stólarnir skoruðu ekki svona mikið af því að þeir hittu öllu ofan í fyrir utan, þeir fengu bara veislu sem ég vissi ekki að Álftanes ætti til. Því þó það hafi gengið illa hjá þeim á Álftanesi, þá hafa þeir verið að spila fína vörn“ sagði Benedikt. Hermann Hauksson tók undir með Benedikt og sagðist aldrei hafa séð annan eins varnarleik. „Það var bara kjánalegt að horfa á þetta“ sagði Hermann en spjall þeirra þriggja má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness
Bónus-deild karla UMF Álftanes Tindastóll Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira