Fer að lægja norðvestantil um hádegi Atli Ísleifsson skrifar 18. desember 2025 07:13 Hiti á landinu í dag verður víða á bilinu núll til sjö stig, mildast syðst. Vísir/Vilhelm Um og eftir hádegi í dag má gera ráð fyrir því að það fari smám saman að lægja á Norðvesturlandi og Vestfjörðum og samhliða því styttir þar upp. Gular viðvaranir hafa verið þar í gildi vegna hríðar.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í öðrum landshlutum verði norðaustan eða austan kaldi eða strekkingur en þó hægari norðaustantil. Snjókoma eða él verða um landið austanvert frameftir degi og styttir svo upp, en skúrir og síðar rigning á Suðausturlandi í kvöld. Hiti á landinu verður víða á bilinu núll til sjö stig, mildast syðst, en vægt frost í innsveitum um landið norðanvert. „Snemma á föstudag verður lægðin, sem hefur verið suður af landinu síðustu daga, komin austurfyrir land og hætt að hafa áhrif. En þá styttist í næstu skil frá lægð sem verður suðvestur af Reykjanesinu á föstudag. Þau skil ganga inn á land á föstudagskvöld og aðfaranótt laugardags með hlýnandi og úrkomusömu veðri. Rigning eða skúrir verða víða um land, en einkum um suðaustanvert landið og er útlit fyrir að það stytti ekki upp þar fyrr en á sunnudagsmorgun. Á sunnudag og mánudag er útlit fyrir að það verði hægur vindur og úrkomulítið á landinu þar sem við verðum líklega komin inn í áhrifasvæði hæðarinnar sem þá verður yfir Skandinavíu. Líklega mun sú hæð stjórna veðrinu hjá okkur eitthvað lengra inn í næstu viku,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Austlæg eða breytileg átt 8-13 m/s, en hægari austantil. Rigning eða slydda með köflum og hiti 1 til 7 stig sunnan- og vestanlands, en annars úrkomulítið og hiti um eða undir frostmarki. Bætir í vind og úrkomu um kvöldið. Á laugardag: Austan 10-18 og rigning með köflum, en talsverð úrkoma suðaustantil. Hægari síðdegis og dregur hægt úr rigningu. Hiti 1 til 8 stig. Á sunnudag (vetrarsólstöður): Suðaustlæg átt 3-10, en hvassara með Suðurströndinni. Bjart með köflum, en dálítil væta suðaustanlands framan af degi. Heldur kólnandi. Á mánudag: Austlæg eða breytileg átt og víða bjart, en skýjað austanlands og dálítil væta sunnantil. Vægt frost, einkum inn til landsins, en hiti allt að 5 stigum sunnanlands. Á þriðjudag (Þorláksmessa): Suðlæg eða breytileg átt og dálítil rigning eða slydda, en lengst af þurrt um landið norðanvert. Hlýnandi veður, hiti 2 til 7 stig undir kvöld, en nálægt frostmarki norðaustanlands.
Veður Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Sjá meira