Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 19. desember 2025 11:18 Diljá Mist og Þórunn þingforseti í góðum gír á Alþingi fyrr í vetur, umkringdar samstarfsmönnum sínum. Vísir/Anton Brink Fundir Alþingis á liðnu haustþingi voru 53 talsins og stóðu samtals í tæpar 320 klukkustundir. Af þeim 138 frumvörpum sem bárust þinginu urðu aðeins 37 að lögum og eru 101 frumvörp enn óútrædd. Þá voru samþykktar fimm þingsályktunartillögur af 66 og ráðherrar svöruðu 107 óundirbúnum fyrirspurnum.
Nú þegar Alþingi er komið í jólafrí hefur skrifstofa Alþingis tekið saman ýmsa tölfræði vegna 157. löggjafarþings sem lauk í gær. Þingið starfaði frá 9. september í haust til 18. desember og kemur þing aftur saman næst samkvæmt áætlun þann 14. janúar. Í tilkynningu frá skrifstofu þingsins segir að þingfundardagar hafi verið 48, en líkt og áður segir voru þingfundirnir þó fleiri, eða 53 talsins. Meðallengd þingfunda var rétt tæpar sex klukkustundir en lengsti þingfundurinn stóð í um 13,5 klukkustundir. Lengst var umræðan um fjárlög sem stóð samtals í 44 klukkustundir og 54 mínútur. Þá voru lagðar fram sex skriflegar skýrslur, þar af ein samkvæmt beiðni, en átta beiðnir um skýrslur til ráðherra komu fram á 157. löggjafarþingi. Þá flutti ráðherra eina munnlega skýrslu. Frá þingsetningarathöfn í september.Vísir/Anton Brink „Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 155. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 14 og hefur sjö þeirra verið svarað en ein var kölluð aftur. 141 skrifleg fyrirspurn var lögð fram og hefur 71 þeirra verið svarað. 70 biðu svars er þingi var frestað,“ segir meðal annars í tilkynningunni. Þá fóru fram tíu sérstakar umræður og samtals hafa verið haldnir 192 fundir í fastanefndum og einn opinn nefndarfundur. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, ávarpaði þingið þegar því var frestað í gær. Í ávarpi sínu vék Þórunn máli sínu meðal annars að kvennréttindabaráttu á Íslandi, rifjaði upp fyrstu alþingiskosningarnar árið 1844 og stofnun Alþingis árið 930. Um leið þakkaði hún þingheimi fyrir samstarfið í vetur, óskaði þeim gleðilegrar hátíðar og kvaðst hlakka til að hitta samstarfsfólkið aftur þegar þing kemur aftur saman í janúar. „Það má með sanni segja um þá þróun í átt til lýðræðis og jafnréttis sem íslenskt samfélag hefur notið góðs af um langt skeið að okkur hefur vissulega miðað fram á við og erum framarlega í flokki á alþjóðavísu. Þar á Alþingi stóran hlut að máli sem löggjafi samfélagsins sem í senn mótar reglur þess og skyldar okkur öll til að hlíta þeim. Við þingmenn erum sérstaklega skuldbundin Alþingi og starfsemi þess. Kjósendur hafa trúað okkur fyrir því meðan kjörtímabilið varir. Það er á ábyrgð okkar allra að sjá til þess að þingið sé starfhæft og að reglur um starfsemi þess séu virtar þannig að það gegni hlutverki sínu. Það er fyrir öllu,“ sagði Þórunn meðal annars í ávarpi sínu sem sjá má í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Þingflokkur Miðflokksins birti jólalega mynd af sér á samfélagsmiðlum í gær í tilefni af jólafríi. Sigríður Andersen fremst í flokki, en hún flutti ávarp fyrir hönd þingmanna við þingfrestun í gær.Facebook/Miðflokkurinn Þá flutti Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, jólakveðju fyrir hönd alþingismanna. „Þingstörfin hafa verið fyrirsjáanleg í flesta staði. Bæði ríkisstjórn og stjórnarandstaða hafa lagt fram fjölda þingmála og í þeirri málstofu sem Alþingi er er eðlilegt að margir kalli eftir orðinu. Til að þingstörfin gangi greiðlega þarf sterka verkstjórn. Þingmenn hafa almennt þykkan skráp í því orðaskaki sem stjórnmálunum fylgir. Það á líka við hér í þingsal og það er viðbúið að sá sem stýrir dagskrá hverju sinni beri þess merki. Falli þung orð í hita leiksins þá fennir yfir þau svo lengi sem forseti er hlutlaus í störfum sínum og þar með forseti þingsins alls,“ sagði Sigríður meðal annars, en ávarp hennar má sjá í heild sinni hér að neðan.
Alþingi Samfylkingin Flokkur fólksins Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lækkar eigin laun Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira