„Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. desember 2025 11:32 Útlitið er afar dökkt hjá Úlfunum sem eiga enn eftir að vinna leik í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. getty/Nick Potts Matt Doherty, leikmaður Wolves, skóf ekki af því eftir enn eitt tap liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Úlfarnir eru aðeins með tvö stig eftir sautján umferðir og allt bendir til þess að þeir falli í B-deildina.
Wolves beið lægri hlut fyrir Brentford í gær, 0-2. Þetta var tíunda tap Úlfanna í röð og það fimmtánda í sautján leikjum í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Ekkert lið hefur verið með færri stig um jólin í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en Úlfarnir og ekkert lið hefur verið lengra frá öruggu sæti (fjórtán stig) á þessum tíma. Doherty, einn reyndasti leikmaður Wolves, reyndi að blása kjarki í sína menn eftir leikinn gegn Brentford. „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að berjast allt til loka tímabilsins eða fyrir að vera skræfur?“ sagði Írinn eftir leikinn á Molineux í gær. „Mér hefur ekki liðið svona illa í langan tíma. Þú sást að völlurinn var nánast tómur í leikslok og hann var ekki fullur í byrjun. Okkur vantar trú á að við getum unnið leikinn. Við erum nánast hræddir við það.“ Wolves vann ekki síðustu fjóra leiki sína á síðasta tímabili og hefur því leikið 21 leik í röð í ensku úrvalsdeildinni án þess að vinna. Síðasti sigur liðsins kom gegn Leicester City, 3-0, 26. apríl. Ekkert lið hefur fengið færri stig á tímabili í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en Derby County 2007-08. Hrútarnir fengu þá aðeins ellefu stig en margir spá því að Úlfarnir slái það met í vetur. Næsti leikur Wolves er gegn Englandsmeisturum Liverpool næsta laugardag.
Enski boltinn Wolverhampton Wanderers Tengdar fréttir Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Fimm leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Boðið var upp á mikla dramatík þegar að Bournemouth tók á móti Burnely og hörmulegt gengi Wolves heldur áfram. 20. desember 2025 17:02 Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Ken Bates látinn Enski boltinn Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira
Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Fimm leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Boðið var upp á mikla dramatík þegar að Bournemouth tók á móti Burnely og hörmulegt gengi Wolves heldur áfram. 20. desember 2025 17:02