Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Aron Guðmundsson skrifar 21. desember 2025 18:47 Rúnar er mættur aftur í þýsku úrvalsdeildina og var ekki lengi að sækja fyrsta sigurinn sem þjálfari Wetzlar Mynd: Wetzlar Rúnar Sigtryggsson stýrði Wetzlar til sigurs gegn Eisenach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Fyrir leik dagsins hafði Wetzlar tapað ellefu leikjum í röð en þetta var annar leikur liðsins undir stjórn Rúnars. Loktatölur sex marka sigur Wetzlar, 33-27.
Íslendingurinn knái, sem tók við stjórn Wetzlar fyrir ekki svo löngu síðan, búinn að setja sitt handbragð á liðið sem þurfti svo sárlega á sigri að halda í kvöld í baráttu sinni um að halda sæti sínu í þýsku úrvalsdeildinni. Wetzlar hafði tapað sínum fyrsta leik undir stjórn Rúnars gegn ríkjandi Þýskalandsmeisturum Fusche Berlin í síðustu umferð en í kvöld tókst liðinu að ná í afar kærkominn sigur, þann fyrsta undir stjórn Rúnars. Jafnræði var með liðunum í leik dagsins framan af en þegar líða tók á fyrri hálfleikinn tókst Eisenach að byggja upp smá bil sem stóð í þremur mörkum, 12-15, þegar fyrri hálfleikur rann sitt skeið. Lærisveinar Rúnars mættu hins vegar tilbúnir í alvöru átök í seinni hálfleik og tókst að brúa bilið og svo komast yfir þegar rétt rúmar átján mínútur eftir lifðu leiks. Forystuna í leiknum létu þeir ekki af hendu, heldur byggðu bara við forystu sína og fór svo að Wetzlar fór með sex marka sigur af hólmi, 33-27. Þetta var aðeins þriðji sigur liðsins á tímabilinu en hann sér til þess að Wetzlar er nú með sjö stig í næstneðsta sæti deildarinnar en aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti þegar enn er nóg eftir af deildinni.
Þýski handboltinn Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Fótbolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira