Gengur í langvinnt hvassviðri seinni partinn Atli Ísleifsson skrifar 23. desember 2025 07:09 Sunnanáttin færir mjög hlýjan og rakan loftmassa yfir landið, ættaðan langt sunnan úr höfum. Vísir/Vilhelm Nú í morgunsárið er tiltölulega rólegur vindur á landinu og lítil úrkoma heilt yfir. Það á síðan að breytast, því síðdegis á að ganga í mikið og langvinnt sunnan hvassviðri, sem á að standa áfram á aðfangadag og enn nokkuð hvasst á jóladag.
Þetta segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að hvassasti kaflinn í þessu veðri verði væntanlega fyrripartinn á aðfangadag á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra. Þar megi búast við stormi eða roki á þessum slóðum og hviðurnar geta farið yfir 40 metrar á sekúndu. „Því hefur þessi kafli á þessum svæðum verið rammaður inn með appelsínugulri viðvörun. Þegar vindstyrkur er orðinn þetta mikill eru ekki bara lausir munir sem geta fokið, heldur geta byggingar á stöku stað skemmst, t.d. losnað þakplötur. Þessu sunnan veðri fylgir talsverð eða mikil rigning á sunnan- og vestanverðu landinu frá því síðdegis í dag og allan aðfangadag, gular viðvaranir vegna rigningar hafa því verið gefnar út. Útlit er fyrir minni úrkomu á jóladag, en einhver væta þó. Sunnanáttin færir einnig mjög hlýjan (og rakan) loftmassa yfir landið, ættaðan langt sunnan úr höfum. Hiti getur náð sér vel á strik við þessar aðstæður í hnjúkaþey á Norður- og Austurlandi. Það kæmi ekki á óvart að sjá 17-18 stig á einhverri mælistöð í þessum landshlutum áður en veðrinu lýkur, t.d. á aðfangadagskvöld eða að morgni jóladags. Þess má geta að hæsti hiti sem mælst hefur í desembermánuði á Íslandi eru 19.7 stig á Kvískerjum 2. desember 2019. Þá var sunnanátt á landinu, ekki ósvipuð þeirri sem nú er í kortunum. Því er ekki hægt að útiloka þann möguleika að desemberhitametið fallin nú um jólin, því hnjúkaþeyrinn getur verið brellinn og brögðóttur,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag (aðfangadagur jóla): Sunnan 20-28 m/s, hvassast í vindstrengjum á norðanverðu landinu, en 13-20 sunnanlands. Dregur heldur úr vindi seinnipartinn. Talsverð rigning um landið sunnan- og vestanvert, en þurrt norðaustantil. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast í hnjúkaþey á Norður- og Austurlandi. Á fimmtudag (jóladagur): Minnkandi sunnanátt, 13-20 síðdegis. Súld eða rigning með köflum, en yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Áfram hlýtt í veðri. Hægari vestast á landinu um kvöldið og bætir í úrkomu. Á föstudag (annar í jólum): Suðvestan 8-13, en 13-18 á norðanverðu landinu fram á kvöld. Dálítil él eða slydduél, en styttir upp á austanverðu landinu. Hiti 0 til 5 stig. Á laugardag: Sunnanátt og dálítil væta sunnan- og vestanlands, annars þurrt. Hiti um eða undir frostmarki, en allt að 6 stigum á vestanverðu landinu. Á sunnudag: Fremur hæg suðvestlæg átt með stöku skúrum á Suður- og Vesturlandi, en bjart fyrir norðan og austan. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt. Dálitlar skúrir og hiti 0 til 5 stig vestanlands en bjart og kalt fyrir austan.
Veður Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Sjá meira