Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. desember 2025 15:18 Michael van Gerwen er varla ánægður að heyra að fyrrverandi eiginkona hans eigi von á barni með nýjum kærasta sínum átta mánuðum eftir að þau skildu. Shownieuws/Getty Daphne Govers, fyrrverandi eiginkona pílukastarans Michael van Gerwen, á von á barni með nýjum kærasta sínum en settur fæðingardagur barnsins er í janúar, átta mánuðum eftir skilnað hennar við van Gerwen. Nýi kærastinn hefur viðurkennt að þau hafi þekkst áður en hjónin skildu og þykir honum leiðinlegt að hafa gert pílukastaranum þennan grikk.
Govers og van Gerwen skildu í maí síðastliðnum eftir tíu ára hjónaband og sautján ára samband þar sem þau eignuðust tvö börn saman. Pílukastarinn birti yfirlýsingu á X (Twitter) þann 24. maí síðastliðinn þar sem hann tilkynnti fregnirnar og dró sig úr keppni í hollenska meistaramótinu. Bað hann aðdáendur sína afsökunar en vonaði að fólk sýndi því skilning og myndi virða friðhelgi einkalífs þeirra. Erfiðasta árið til þessa Síðan þá hefur van Gerwen snúið aftur til keppni og keppir um þessar mundir á heimsmeistaramótinu í pílu sem stendur yfir frá 11. desember 2025 til 3. janúar 2026. Blaðamaður hollenska dagblaðsins AD ræddi við Gerwen rétt eftir að keppnin hófst og spurði hann út í skilnaðinn og önnur vandræði sem pílukastarinn hefur glímt við undanfarið. Lýsti van Gerwen árinu 2025 sem sínu versta til þessa í viðtalinu. Ekki nóg með að hafa skilið við Daphne, sem hann hafði verið frá því þau voru átján ára og átti með son og dóttur, heldur hefur faðir hans verið alvarlega veikur af krabbameini. Van Gerwen hefur þrisvar sinnum orðið Heimsmeistari.Getty „Hlutirnir eru ekki enn farnir að ganga vel,“ sagði van Gerwen um veikindi föður síns. „Fyrir einu og hálfu ári síðan var nefið hans fjarlægt því það var fullt af krabbameini. Núna hafa allir eitlarnir í báðum eyrum verið fjarlægðir. Það ætti að batna en lífsgæðin eru ekki mikil. Ég hata að horfa upp á það,“ sagði hann. Ári fyrr í aðdraganda síðasta heimsmeistaramóts hafði van Gerwen sagt að hann vonaði að árið 2025 yrði betra en 2024 þar sem hann þurfti að ganga undir nokkrar skurðaðgerðir á kjálka. Eftir á að hyggja hafi árið 2024 ekki verið svo slæmt. „Í ár leið mér líka eins og kjálkinn minn væri brotinn,“ sagði hann um þjáningar sínar. Van Gerwen hefur þó gengið vel á heimsmeistaramótinu og er kominn í sextán manna úrslit þar sem hann mætir Skotanum Gary Anderson annað kvöld. Fyrr í dag sást einnig til pílukastarans yfirgefa hótel sitt í Lundúnum með dularfullri, ungri, dökkhærðri konu. Náðust myndir af þeim knúsast áður en konan yfirgaf vettvang. Erfitt að gera van Gerwen grikk og barnið kraftaverk Rúmri viku eftir að van Gerwen tjáði sig um skilnaðinn komu Daphne Govers og nýi kærasti hennar, Robert, fram í hollenska dægurmálaþættinum Shownieuws á sjónvarpsstöðinni SBS6 til að ræða ástina, óléttuna og skilnað hennar við van Gerwen. Robert staðfesti þar að þau hefðu þekkst „um langa stund“ og alltaf komið vel saman áður en sambandið hófst. „Það var þá sem neistinn kviknaði. Það var ekki ætlunin en það gerðist,“ sagði hann jafnframt. Robert og Daphne í þætti Shownieuws. „Við vildum ekki særa neinn, lof mér að vera skýr með það. Við vildum ekki særa neinn, ekki Michael, ekki neinn. Það gerðist bara. Þetta atvikaðist aðeins öðruvísi en við áttum von á,“ sagði Robert. Þá tók Daphne sérstaklega fram að Robert hefði verið búinn að hætta með sinni fyrrverandi þegar þau hófu sambandið. Hún sagðist jafnframt enn eiga gott vinasamband við fyrrverandi eiginmann sinn. Robert sagðist bera virðingu fyrir van Gerwen og þeir hittust oft vegna þess að hjónin deila forræði yfir börnunum tveimur, Zoe og Mike. „Mér finnst þetta erfitt. Auðvitað gerði ég honum þennan grikk og ég er ekki stoltur af því,“ sagði Robert jafnframt. „En hey, ég vel mína eigin hamingju og hann er velkominn hingað.“ Govers ræddi einnig um „kraftaverkabarnið“ sem hún og Robert eiga von á í janúar, aðeins átta mánuðum eftir að þau skildu í maí. „Ég átti ekki von á því,“ sagði Govers. „Ég gæti ekki hafa orðið barnshafandi náttúrulega. Ef það gerist er það lítið kraftaverk.“
Pílukast Holland Ástin og lífið Bretland Barnalán Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Fleiri fréttir Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Sjá meira