Kvennaár og hvað svo? Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Steinunn Bragadóttir skrifa 30. desember 2025 09:02 Á Kvennaári 2025 höfum við tekið saman tölfræði og sett í samhengi við kröfur kvennaárs. Kröfurnar varða aðgerðir til að eyða kynbundnum launamun, jafna fjölskylduábyrgð og uppræta kynbundið ofbeldi. Greinarnar okkar sýna að þegar gögn eru rýnd í samhengi verður kynbundið ójafnrétti skýrara, ekki sem einstök frávik heldur sem afleiðing samverkandi þátta á mörgum sviðum samfélagsins. Kynbundinn launamunur, fjölskylduábyrgð og öryggi kvenna Vinnumarkaðurinn er mjög kynskiptur. Meirihluti þeirra sem mennta sig í heilbrigðis- og menntagreinum eru konur. Kynbundinn launamun má fyrst og fremst rekja til vanmats á þessum hefðbundnu kvennastörfum. Líkamlegt og tilfinningalegt álag sem oft einkennir þessi störf leiðir einnig til hærri örorkutíðni meðal kvenna en karla og eykur líkur á að konur endi starfsævina á örkulífeyri, en um 60% fólks með örorku eru konur. Atvinnuþátttaka kvenna er að jafnaði minni en karla. Konur eru líka miklu líklegri til að vera í hlutastarfi, einkum vegna fjölskylduábyrgðar. Þetta hefur áhrif á kynbundinn mun í atvinnutekjum, sem og ævitekjum og veldur því að tekjur kvenna á efri árum eru mun lægri en tekjur karla. Konur á öllum aldri búa því síður við fjárhagslegt sjálfstæði en karlar. Þennan tekjumun má m.a. rekja til kynbundinna áhrifa barneigna. Konur taka meirihluta fæðingarorlofsdaga, brúa umönnunarbilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og eru því lengur utan vinnumarkaðar vegna barnaeigna. Hefðbundin kynhlutverk birtast einnig í því að konur bera meiri ábyrgð á ólaunaðri vinnu sem tengist fjölskyldu- og heimilisábyrgð, sem hefur svo neikvæð áhrif á vinnutíma, starfsþróun og tekjur. Konur í hópi innflytjenda búa einnig við lakari kjör og ótryggari stöðu en íslenskar konur að jafnaði. Tvöföld mismunun, vegna kyns og uppruna, birtist í lægri launum, lengri vinnutíma, ótryggari húsnæðisstöðu og verri andlegri heilsu. Kynbunið ofbeldi er ógn við frelsi, heilsu og velferð kvenna. Fjórða hver kona hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi og fimma hver kona hefur orðið fyrir ofbeldi í nánum samböndum af hálfu maka eða fyrrum maka á lífsleiðinni. Ákveðnir hópar verða frekar fyrir misrétti og ofbeldi en aðrir og má þar nefna fatlaðar konur, kynsegin konur og konur af erlendum uppruna. Við vitum hvað þarf að gera Tölfræðileg samantekt okkar á kvennaári sýnir að kynjamisrétti verður hvorki skilið né leyst með því að horfa einangrað á einstaka mælikvarða. Kynjamisrétti verður til í samspili vinnumarkaðar, fjölskylduábyrgðar, velferðarkerfa og öryggis kvenna, sem kallar á samþættar og markvissar aðgerðir. Umfjöllun okkar um tvöfalda mismunun innflytjendakvenna undirstrikar líka þörfina á að tölfræði sé hægt að greina eftir uppruna. Eitt skýrasta dæmið er umönnunarbiliðmilli fæðingarorlofs og leikskóla. Skortur á leikskólaplássum er ekki einkamál fjölskyldna ungra barna heldur ekki síður jafnréttismál og getur dregið úr atvinnuþátttöku, starfshlutfalli, tekjum og tækifærum kvenna á vinnumarkaði. Í kjölfar kjarasamninga vorið 2024 var settur starfshópur á laggirnar um brúun umönnunarbilsins með þátttöku fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar sem nú hefur skilað tillögum um að lögfesta rétt barna til leikskóladvalar að loknu fæðingarorlofi og gera rekstur leikskóla að lögbundnu hlutverki sveitarfélaga. Lagt er til að lögfesting eigi sér stað á árinu 2026 og að rétturinn verði innleiddur í skrefum á næstu árum. Kannanir sem varpa ljósi á skiptingu ólaunaðrar vinnu sýna jafnframt að ekki er hægt að ná fram jafnrétti á vinnumarkaði nema tekið sé á ójafnri skiptingu fjölskylduábyrgðar. Ójöfn nýting karla og kvenna á fæðingarorlofsdögum hefur þar áhrif og viðheldur ójafnri fjölskylduábyrgð frá upphafi þegar foreldrar eignast sitt fyrsta barn. Þrátt fyrir jafnan rétt foreldra nýta feður síður sinn rétt og taka að jafnaði um þremur mánuðum styttra fæðingarorlof en mæður, meðal annars vegna tekjutaps. Af því leiðir krafa um að greiðsluþak fæðingarorlofs verði hækkað þannig að feður hafi raunhæfan möguleika á fullri töku. Í tengslum við gerð kjarasamninga var þakið hækkað og verður það 900.000 kr. nú um áramótin. Mikilvægt er að greiðsluþakið rýrni ekki yfir tíma heldur hækki árlega og fylgi launaþróun. Tölfræði um vinnumarkaðinn og launamun kynjanna dregur fram þörfina á að endurskoða virðismat starfa. Hefðbundin kvennastörf eru kerfisbundið vanmetin, þrátt fyrir menntun, ábyrgð og álag. Í tengslum við gerð kjarasamninga 2024 lýstu stjórnvöld því yfir að innleiða ætti í áföngum viðrismatskerfi á grunni tillagna aðgerðahóps stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Tölfræði um kynbundið ofbeldi sem meira en fjórða hver kona verður fyrir kallar á raunverulega aðgerðir sem taka mið af margþættri mismunun og öryggisógn kvenna. Kvennasamtök hafa áratugum saman barist fyrir slíkum aðgerðum og má þar nefna forvarnir gegn ofbeldi, vernd brotaþola, bætta eftirfylgni í réttarkerfinu og uppfærða löggjöf, þar á meðal vegna stafræns ofbeldis. Þessar aðgerðir eru órjúfanlegur hluti af því að tryggja efnahagslegt og félagslegt jafnrétti. Valkyrjur til verka Kynjajafnrétti verður ekki náð nema með skýrum pólitískum vilja og aðgerðum. Valkyrjurnar í ríkisstjórn Íslands vita hver verkefnin eru. Það þarf að endurmeta virði kvennastarfa, brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og fara í margþættar aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi. Megi nýtt ár færa þeim hugrekki og dug til að láta til sín taka svo að þær geti, kinnroðalaust, horfst í augu við kynsystur sínar. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB. Steinunn Bragadóttir, hagfræðingur ASÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Steinunn Bragadóttir Kvennaverkfall Jafnréttismál Kynbundið ofbeldi Stéttarfélög Mest lesið Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Stóra spurningin um íslenskt fiskeldi Björn Hembre,Daníel Jakobsson,Vidar Aspehaug skrifar Skoðun Bíddu! Erum við ekki að kjósa um það sama? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver stjórnar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Verum góð við hvort annað Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun Ég hélt að ég vissi hvað fullveldi væri Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Umburðarlyndið sem geltir Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Gögnin á borðið Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Röng spurning í réttri umræðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Vönduð hönnun er ábyrg uppbygging Björg Torfadóttir skrifar Skoðun Markaðsverð raforku í áttfalt heimilisverð Símon Einarsson skrifar Skoðun Aukin gjaldtaka vinnur gegn dreifingu ferðamanna Sara Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Svíkjum ekki gerða samninga Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Danir ætla að verja Grænland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Já eða nei? Kosningar 29. ágúst 2026 Grétar H. Óskarsson skrifar Skoðun Þegar innviðaskuldin gjaldfellir samfélagssáttmálann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ekki sjá eftir atkvæðinu þínu! Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Í kjörklefanum erum við ein Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Sævar Helgi horfir heima Atli Viðar Thorstensen skrifar Skoðun Skiptir stærðin máli? Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Samvinna auðlindagreina styrkir allra hag Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vantar okkur líka lesefni sem börn hafa áhuga á að velja sjálf? Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Símafriður er kominn til að vera og það er fagnaðarefni Atli Þór Jóhannsson,Hermann Arnar Austmar,Dagný Hróbjartsdóttir,Héðinn Svarfdal Björnsson,Karen Kristine Pye,Kristófer Nökkvi Sigurðsson,Kristín Ólöf Grétarsdóttir,Salka Hauksdóttir,Sigvaldi Egill Lárusson,Stefán Þór Helgason,Stefán Karl Snorrason skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að almenningssamgöngur á landsbyggðinni séu skertar? Halla Hrund Logadóttir skrifar