„Svartir sauðir misnoti réttindin“ og Reykjavík ræðst í aðgerðir Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 7. janúar 2026 18:58 Ásta Bjarnadóttir skrifstofustjóri Starfsþróunar og starfsumhverfis heldur utan um verkefni sem á að lækka veikindahlutfall hjá borginni. Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs segir of algengt að opinberir starfsmenn misnoti réttindi sín. Vísir Starfsfólk Reykjavíkurborgar hefur tekið fleiri veikindadaga síðustu þrjú ár en árin á undan. Stjórnendur telja þetta alvarlega þróun og hafa ákveðið að ráðast í sérstakar aðgerðir. Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs telur of algengt að fólk misnoti kerfið, sem bjóði líka upp á það.
Hátt veikindahlutfall hjá mörgum opinberum stofnunum hefur víða verið áhyggjuefni. Á síðasta ári voru 7,4 prósent starfsmanna Reykjavíkur frá vinnu á hverjum degi að meðaltali vegna veikinda. Mest voru þau á skóla- og frístundasviði og umhverfis- og skipulagssviði eða um átta prósent. Þá var hlutfallið 7,4 prósent á velferðarsviði. Veikindahlutfallið er hins vegar mun lægra á menningar- og íþróttasviði eða rúmlega fimm prósent. Veikind hjá starfsfólki Reykjavíkurborgar eru algengari nú en fyrir nokkrum árum. Ákveðið hefur verið að ráðast í átak. Vísir/Hjalti Borgin hefur ákveðið að ráðast í aðgerðir til að fækka veikindadögum og ætlar að byrja hjá sviðum þar sem veikindin eru mest. Þrír sérfræðingar munu starfa markvisst með stjórnendum að leiðum til að fækka fjarvistum vegna veikinda. Þegar hefur verið auglýst eftir sérfræðingi í viðverustjórnun á vefsíðunni Alfreð. Stytting vinnuvikunnar hafi ekki fækkað veikindadögum Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri Starfsþróunar og starfsumhverfis, segir að byrjað verði á þeim sviðum þar sem veikindin eru hlutfallslega mest. „Við höfum áhyggjur af þessari þróun. Við höfum í nokkur ár verið með sérstakar heilsu- og viðverustefnur. Þrátt fyrir það hefur veikindahlutfallið hjá borginni verið ívið hærra síðustu þrjú ár en árin á undan,“ segir Ásta. Veikindi hjá Landspítala og sveitarfélögum árið 2024.Vísir/Hjalti Stytting vinnuvikunnar síðustu ár hafi ekki haft áhrif til lækkunar. „Við höfum séð lækkandi álag starfsfólks með styttingu vinnuvikunnar en við höfum ekki séð veikindahlutfallið fara niður,“ segir Ásta. Hún telur heldur ekki að hærra veikindahlutfall sé vegna myglu sem hefur fundist víða í húsnæði borgarinnar. „Eðli málsins samkvæmt þá vitum við ekki alltaf hver veikindi starfsmanna eru en við teljum ekki að mygla sé stór hluti af skýringu á hærra veikindahlutfalli en áður,“ segir Ásta. Telur of algengt að kerfið sé misnotað Viðskiptaráð hefur vakið athygli á að þrátt fyrir að vinnuvikan sé styttri á opinberum markaði en hinum almenna séu veikindi algengari á hinum fyrrgreinda. Þá hafi opinberir starfsmenn rýmri veikindarétt en á almennum vinnumarkaði sem hafi bein áhrif á veikindadaga. Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri segir „Veikindaréttur opinberra starfsmanna er mun meiri en á almennum vinnumarkaði. Svona óhóflegur veikindaréttur veldur því að veikindahlutfallið verður hærra. Þetta er líka þróun erlendis, því ríkari sem rétturinn er því meira er fólk veikt. Við teljum þetta óeðlilegt því ef þú ert veikur mánuðum saman þá er þetta mál sem varðar heilbrigðis- eða örorkukerfið, en ekki vinnuveitendur,“ segir Björn. Ásta Bjarnadóttir segir eðlilegt að veikindi opinberra starfsmanna mælist meiri. „Á almenna markaðnum dettur fólk fyrr út af launaskrá af því veikindaréttindin eru minni og þess vegna mælast lægri veikindahlutföll þar,“ segir hún. Svartir sauðir á vinnumarkaði Björn telur hins vegar að kerfið geti boðið upp á misnotkun. „Það eru svartir sauðir sem misnota réttindin og þá er mikilvægt að réttindin séu ekki óhófleg. Við þekkjum mörg dæmi þess hjá opinberum stofnunum og í sveitarfélögum að starfsmenn sem hafa verið að vinna þar og fá veður af skipulagsbreytingum sem þeir eru ósáttir við fari í veikindaleyfi og jafnvel í ár. Þá eru ekki einhver veikindi í gangi heldur ósætti við stjórnunarhætti eða eitthvað slíkt. Þetta er ekkert annað en misnotkun á þessum réttindum,“ segir Björn. Líti jafnvel á veikindarétt sem frítökuréttindi Viðskiptaráð vilji jafnframt láta kanna hvenær fólk tilkynnir veikindi. „Við erum að reyna að fá upplýsingar um hvort fólk tilkynni frekar veikindi á mánudögum og föstudögum eða í byrjun mánaðar þegar réttindin raungerast. Af því við höfum heyrt frásagnir af þessu bæði hjá ríki og sveitarfélögum að á sumum vinnustöðum viðgangist sú menning að fólk líti á þessi réttindi sem frítökurétt og það er í hæsta máta óeðlilegt,“ segir Björn.
Vinnumarkaður Reykjavík Sveitarstjórnarmál Tengdar fréttir Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Heildarkostnaður Reykjavíkurborgar og Landspítala vegna veikinda starfsmanna síðustu þrjú ár nemur um átján milljörðum króna hjá hvorri stofnun. Veikindi í opinberum stofnunum eru algengari nú en fyrir nokkrum árum. Veikindahlutfall hjá Seltjarnarnesi lækkaði um fjórðung milli ára eftir að sveitarfélagið réðst í aðgerðir að sögn bæjarstjóra. 2. janúar 2026 19:00 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Sjá meira
Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Heildarkostnaður Reykjavíkurborgar og Landspítala vegna veikinda starfsmanna síðustu þrjú ár nemur um átján milljörðum króna hjá hvorri stofnun. Veikindi í opinberum stofnunum eru algengari nú en fyrir nokkrum árum. Veikindahlutfall hjá Seltjarnarnesi lækkaði um fjórðung milli ára eftir að sveitarfélagið réðst í aðgerðir að sögn bæjarstjóra. 2. janúar 2026 19:00