Magnaður sigur Newcastle eftir tvö í uppbótartíma Sindri Sverrisson skrifar 7. janúar 2026 22:30 Harvey Barnes fagnaði innilega eftir sigurmarkið í kvöld. Getty/George Wood Newcastle komst upp fyrir Manchester United og Chelsea, í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, með ótrúlegum 4-3 sigri gegn Leeds í kvöld.
Leeds var yfir, 3-2, þegar komnar voru 90 mínútur á klukkuna en þá jafnaði Bruno Guimaraes metin úr víti og enn var tími fyrir Harvey Barnes til að skora sitt annað mark, og tryggja Newcastle sigurinn, þegar langur uppbótartíminn var við það að klárast. Newcastle er því með 32 stig í 6. sæti, jafnmörg stig og Manchester United sem er sæti neðar og einu meira en Chelsea og Fulham, eftir að United gerði jafntefli við Burnley í kvöld og Chelsea tapaði gegn Fulham. Leedsarar mega vera sárir og sitja eftir með 22 stig í 16. sæti, átta stigum frá fallsæti. Brenden Aaronson kom þeim í 1-0 á 32. mínútu en Harvey Barnes jafnaði metin örfáum mínútum síðar, eftir stutta sendingu frá Nick Woltemade. Leeds fékk svo vítaspyrnu í lok fyrri hálfleiks, þegar Malick Thiaw handlék boltann, og Dominic Calvert-Lewin skoraði af öryggi úr vítinu og kom Leeds í 2-1. Í seinni hálfleiknum jafnaði Joelinton metin fyrir Newcastle með skalla en Aaronson kom Leeds yfir að nýju á 79. mínútu, með laglegum hætti og skoti úr teignum. Það dugði þó skammt eins og fyrr segir og Newcastle-menn fögnuðu gríðarlega sætum sigri sem er þeirra þriðji sigur í röð.
Enski boltinn Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“ Sport City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Enski boltinn Fleiri fréttir City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Sjá meira