Tvö hundruð manns bjargað af þjóðvegi 1 Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 8. janúar 2026 21:43 Vegfarendur sem stigu út úr bílum sínum áttu margir erfitt með að komast aftur inn í þá vegna mikilla vinda. Landsbjörg Tuttugu og fimm björgunarsveitamenn komu um tvö hundruð manns til bjargar þegar ofsaveður reið yfir á þjóðvegi 1 milli Jökulsárlóns og Skaftafells í dag. Unnið er að því að koma fólkinu af fjöldahjálparstöð á Hofi í Öræfum að Hnappavöllum, þar sem það fær að gista í nótt.
Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við fréttastofu. Björgunarsveitir hafa frá því í hádeginu í dag verið við störf í Öræfum við að koma ferðafólki til aðstoðar í slæmu veðri og vondri færð. Þegar blaðamaður náði tali af Jóni Þór sagði hann stutt þar til aðgerðum björgunarsveitanna lyki. Enn eigi eftir að sækja fólk í tveimur bílum og koma öllum í gistingu að Hnappavöllum. „Mitt fólk telur að þau hafi snert við nærri tvö hundruð manns í þessu verkefni,“ segir Jón Þór. Aðspurður segir hann það mikinn fjölda. „Það var ekki stætt þarna á tímabili. Ég er ekki viss um hvernig veðrið er núna. Fólk fór út úr bílnum sínum og það bara fauk,“ segir Jón Þór. Því var gripið til þess ráðs að senda út skilaboð í síma á svæðinu þar sem fólk var beðið um að halda sig í bílum sínum þar til hjálp bærist. Á morgun bíður björgunarsveitanna það verkefni að sækja alla bílana sem skildir voru eftir á veginum í aðgerðunum. Jón Þór segir bílana telja einhverja tugi. Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri neyðarvarna hjá Rauða krossinum, segir vel hafa gengið að taka á móti fólki á fjöldahjálparstöðinni, sem staðsett er í grunnskólanum Hofgarði á Hofi í Öræfum, í dag. Hún segir að vel hafi gengið að finna gistingu fyrir alla ferðalangana en sem fyrr segir verða þeir fluttir að Hnappavöllum þar sem þeir koma til með að gista í nótt. „Þannig að þau þurfa ekki að gista á beddum í nótt,“ segir Aðalbjörg.
Björgunarsveitir Sveitarfélagið Hornafjörður Færð á vegum Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira