Viðverustjórn er hluti af sérfræðiþekkingu mannauðsfólks Jakob Bjarnar skrifar 10. janúar 2026 09:02 Ef nýi starfsmaðurinn hættir líka að mæta þarf einfaldlega að auglýsa stöðu sérfræðings í viðverustjórn viðverustjórnarsérfræðingsins. Snorri hefur auglýsinguna í flimtingum en Eva Bergþóra hjá borginni lætur sér hvergi bregða. Auglýsing Reykjavíkurborgar eftir sérfræðingi í viðverustjórn hefur vakið talsverða athygli. Snorri Másson varaformaður Miðflokksins til að mynda dró auglýsinguna sundur og saman í háði en Eva Bergþóra Guðbergsdóttir samskiptastjóri borgarinnar lét sér hvergi bregða þegar hún var spurð út í hvað þetta væri eiginlega? „
Viðverustjórn fellur innan sérfræðiþekkingar mannauðsfólks, það er að segja þeirra sem starfa við mannauðsmál í fyrirtækjum og stofnunum,“ segir Eva Bergþóra. Reynt að bregðast við auknum veikindum Og Eva bætir því við, þegar spurt er hvaða menntun sé áskilin, að sérstaklega sé tilgreint í auglýsingunni að framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála sé æskileg. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður hefur í vikunni fjallað ítarlega um veikindi opinberra starfsmanna og greindi frá því að Reykjavíkurborg til að mynda vilji bregðast við því að starfsfólk þar hefur tekið fleiri veikindadaga síðustu þrjú ár en árin þar á undan. Ásta Bjarnadóttir, skrifstofustjóri Starfsþróunar og starfsumhverfis sagði þau vitanlega hafa áhyggjur af þeirri þróun. „Við höfum í nokkur ár verið með sérstakar heilsu- og viðverustefnur,” sagði Ásta. Hún sagði jafnframt að auglýst hefði verið eftir sérfræðingi á þessu sviði. Gerir grín að öllu saman Snorri Másson henti boltanum á lofti og gerði grín að öllu saman: „Þegar allir eru hættir að mæta í vinnuna er það eina í stöðunni auðvitað að ráða nýjan starfsmann, nánar tiltekið sérfræðing. Fyrsta verk starfsmannsins er að kanna hvers vegna allir hinir eru hættir að mæta. Ef nýi starfsmaðurinn hættir líka að mæta þarf einfaldlega að auglýsa stöðu sérfræðings í viðverustjórn viðverustjórnarsérfræðingsins. Þetta er sjálfbært ferli og má endurtaka þar til vandinn er leystur,“ sagði Snorri á Facebook við miklar undirtektir. Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri á Samstöðinni, benti hins vegar á að veikindahlutfall formanns hans, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, væri talsvert. Eva Bergþóra sagði þetta verkefni hafa verið lengi í undirbúningi enda legið fyrir í nokkur ár að veikindahlutfall sé hátt og fari hækkandi frekar en hitt. En hvað gerir slíkur sérfræðingur, hvernig ber hann sig að við störf sín? „Sérfræðingurinn vinnur með almennum stjórnendum (til dæmis leikskólastjóra eða forstöðumanni íbúðakjarna) að því að framfylgja viðverustefnu borgarinnar, er þeim til stuðnings og ráðgjafar. Meðal verkefna er að taka þátt í svokölluðum viðverusamtölum þar sem rætt er við starfsfólk sem er með mikið af skammtímaveikindum.“ Mannauðsfólk leitar eftir hagræðingartillögum Eva Bergþóra segir að í slíkum samtölum sé starfsmaður upplýstur um umfang fjarvistanna og skoðað hvort vinnustaðurinn geti gert eitthvað. Eva Bergþóra lætur sér hvergi bregða þegar spurt er um verksvið væntanlegs viðverustjóra.Reykjavíkurborg „Til dæmis að breyta vinnutíma eða starfshlutfalli, til að auðvelda þeim að mæta betur. Einnig að taka þátt í endurkomusamtölum þegar starfsfólk er að koma til baka eftir langtímaveikindi og að ráðleggja um aðlögun, ef þörf er á, til að fyrirbyggja endurtekin veikindi. Þá getur sérfræðingurinn ráðlagt um nýtingu trúnaðarlæknisþjónustu eða annarra úrræða samkvæmt kjarasamningum.“ Að sögn Evu Bergþóru heyrir sérfræðingur í viðverustjórn undir þá skrifstofu sem hefur með störfin að gera en vinnur þvert á öll svið með almennum stjórnendum. Eva Bergþóra taldi ekki að um pólitískan þrýsting væri að ræða hvað þessa starfsauglýsingu varðar. „Um er að ræða útfærslu á hugmynd sem kom fram frá mannauðsfólki þegar leitað var eftir hagræðingartillögum innan borgarkerfisins.“
Reykjavík Mannauðsmál Rekstur hins opinbera Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira