Utandeildarlið henti meisturunum úr keppni Valur Páll Eiríksson skrifar 10. janúar 2026 14:12 Isaac Buckley-Ricketts fagnar marki sínu gegn bikarmeisturunum. Michael Regan/Getty Images Utandeildarlið Macclesfield gerði sér lítið fyrir og sló bikarmeistara Crystal Palace úr leik í ensku bikarkeppninni í fótbolta.
Fjórir leikir fóru fram í FA-bikarnum í hádeginu þar sem fjögur úrvalsdeildarlið voru í eldlínunni. Bikarmeistarar Crystal Palace áttu auðveldasta verkefnið á pappír, í heimsókn hjá Macclesfield, sem leikur í sjöttu efstu deild á Englandi. Palace-menn áttu í vandræðum í leiknum. Þeir komust lítt áleiðis gegn varnarmúr heimamanna á gervigrasvelli heimamanna. Macclesfield reyndi við skyndisóknir og gekk töluvert betur að skapa sér vænlegar sóknarstöður þrátt fyrir gæðamun. Macclesfield komst yfir þökk sé skallamarki miðjumannsins Paul Dawson undir lok fyrri hálfleiks og allt trylltist á vellinum. Fögnuðurinn var ekki mikið minni þegar framherjinn Isaac Buckley-Ricketts skoraði annað mark liðsins á 60. mínútu. Palace tókst ekkert að ógna forystu Macclesfield af skapi og 2-0 lauk leiknum. Bikarmeistararnir því óvænt úr leik en Macclesfield sem er í næst efstu utandeild Englands komið áfram. Framlengt í Liverpool Úrvalsdeildarslagur var milli Everton og Sunderland í Liverpool-borg. Þar kom Frakkinn Enzo Le Feé gestunum yfir en James Garner jafnaði úr vítaspyrnu undir lok leiks. Leiknum lauk 1-1 og framlenging stendur yfir. Wolves vinnur ekki marga leiki þessi dægrin en hafði betur gegn D-deildarliði Shrewsbury 6-1 þar sem Norðmaðurinn Jörgen Strand Larsen skoraði þrennu. B-deildarlið Leicester City fór þá áfram eftir 2-0 útisigur á D-deildarliði Cheltenham.
Enski boltinn Crystal Palace FC Everton FC Wolverhampton Wanderers Sunderland AFC Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Ísland - Sviss | Allt undir hjá ungu strákunum okkar Fótbolti City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Enski boltinn Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“ Sport Fleiri fréttir City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Sjá meira