Eyjakonur fylgja Val fast eftir og KA/Þór hóf nýja árið af krafti Sindri Sverrisson skrifar 10. janúar 2026 18:38 Birna Berg Haraldsdóttir skoraði sjö mörk í dag. Vísir/Diego Eyjakonur fylgja Val eftir á toppi Olís-deildar kvenna í handbolta með 23-20 sigri gegn Haukum í dag og KA/Þór hóf nýja árið á öflugum sigri gegn ÍR, 23-21.
Leikirnir voru í 12. umferð, þeirri fyrstu eftir jólafrí, en fyrr í dag vann Valur stórsigur gegn Fram, 30-19, og Stjarnan mikilvægan botnbaráttusigur gegn Selfossi, 34-28. Valur og ÍBV eru nú líkt og í jólafríinu jöfn að stigum í 1.-2. sæti, með 20 stig, en ÍR er í 3. sæti enn með 14 stig. Liðið er núna þremur stigum á undan Haukum, Fram og KA/Þór sem eru með 11 stig hvert. Stjarnan (5 stig) og Selfoss (4 stig) eru þar talsvert á eftir. Eyjakonur höfðu frumkvæðið allan leikinn gegn Haukum í dag, voru 13-10 yfir í hálfleik og hleyptu Haukum aldrei nær sér eftir það. Sandra Erlingsdóttir fór á kostum og skoraði 11 mörk fyrir ÍBV og Birna Berg Haraldsdóttir skoraði sjö. Hjá Haukum voru Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Rakel Oddný Guðmundsdóttir og Jóhanna Margrét Sigurðardóttir með fjögur mörk hver. Á Akureyri var mikil spenna þó að heimakonur væru 13-9 yfir í hálfleik. ÍR jafnaði smám saman metin og var staðan 19-19 þegar átta mínútur voru eftir. Á lokamínútunni minnkaði Sara Dögg Hjaltadóttir muninn í eitt mark, 22-21, en Sólveig Lára Kristjánsdóttir innsiglaði svo sigur KA/Þórs þegar nokkrar sekúndur voru eftir. Susanne Pettersen var markahæst hjá KA/Þór með sex mörk og Tinna Valgerður Gísladóttir skoraði fimm. Sara Dögg Hjaltadóttir skoraði sex fyrir ÍR og Vaka Líf Kristinsdóttir fimm.
Olís-deild kvenna Mest lesið Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Fótbolti Vinícius á förum? Fótbolti „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Fótbolti Fleiri fréttir Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira