Tveir ungir varnarmenn til FH Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. janúar 2026 13:08 Kristján Snær Frostason og Aron Jónsson eru mættir í Kaplakrika. fh FH hefur fengið tvo unga varnarmenn, Aron Jónsson og Kristján Snæ Frostason. Sá fyrrnefndi kemur frá Aftureldingu og sá síðarnefndi frá HK.
Aron, sem er fæddur 2004, lék sautján leiki með Aftureldingu í Bestu deildinni í fyrra. Hann er uppalinn hjá Brann í Noregi en fór til Aftureldingar fyrir tveimur árum. „Aron er hafsent sem hefur mikið af þeim eiginleikum sem við erum að leita eftir, öruggur á boltanum, fljótur og kraftmikill og með gott hugarfar. Er með góðan bakgrunn frá Noregi, kominn með reynslu úr efstu deild hér á Íslandi og hefur mikinn metnað fyrir því að bæta sig enn frekar,“ segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH, um Aron. Kristján, sem er fæddur 2005, hefur leikið 45 leiki fyrir HK í Bestu- og Lengjudeildinni. „Kristján er sókndjarfur bakvörður með mikla hlaupagetu, hraða og kraft. Hann er kominn með fína reynslu úr efstu deild, gott hugarfar og mikinn vilja til að bæta sig enn frekar og stimpla sig inn í FH-liðið,“ segir Davíð um Kristján. Hann mun væntanlega berjast um stöðu hægri bakvarðar hjá FH við annan HK-ing, Birki Val Jónsson. Auk Arons og Kristjáns hefur FH fengið markvörðinn Jökul Andrésson frá Aftureldingu og miðjumanninn Kára Kristjánsson frá Þrótti fyrir komandi tímabil. Jóhannes Karl Guðjónsson var ráðinn þjálfari FH í vetur en hann tók við starfinu af Heimi Guðjónssyni. Á síðasta tímabili endaði FH í 6. sæti Bestu deildarinnar.
Besta deild karla FH Lengjudeild karla Afturelding HK Mest lesið Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Lebron talaði hreint út Körfubolti Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Enski boltinn „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Handbolti Elvar með sex mörk í toppslagnum Handbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Ítalir völtuðu yfir Tyrki í Tyrklandi Fótbolti Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Sjá meira