Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. janúar 2026 16:00 Marie Hobinger átti erfitt með að einbeita sér inni á vellinum þegar hún vissi af eltihrelli uppi í stúku. Nick Taylor/Liverpool FC/Liverpool FC via Getty Images Breskur maður á fimmtudagsaldri var úrskurðaður í nálgunarbann og átján mánaða samfélagsþjónustu eftir að hafa elt og hrellt Marie Hobinger, leikmann Liverpool í ensku úrvalsdeildinni.
Maðurinn er tveggja barna faðir og heitir Mangal Dalal. Hann er 42 ára gamall og er frá Lundúnum á Englandi. Fyrir uppkvaðningu dómsins játaði hann brot sitt og sagðist hafa verið að glíma við andleg vandamál tengd geðhvarfasýki sinni þegar brotin áttu sér stað. Hann notaði tvo mismunandi aðganga á samfélagsmiðlum og sendi Hobinger ítrekuð skilaboð. Fyrstu skilaboðin snerust um einfaldar ástarjátningar en skilaboðin urðu sífellt grófari og á endanum var maðurinn farinn að senda myndir af kynfærum og biðja um kynlíf. „Ertu búin að snerta þig til að hita upp fyrir leikinn?... Viltu vinsamlegast ríða mér?... Mig langar að eignast með þér börn“ var meðal skilaboða sem hann sendi, ásamt heimilisfangi sínu. Hobinger brást við með því að blokka Dalal á samfélagsmiðlum og láta Liverpool vita. Hún fékk þá öryggisfulltrúa frá félaginu til að fylgja sér, og það átti eftir að reynast heillaskref. Dalal fór nefnilega að mæta á leiki Liverpool og eftir leik liðsins við Manchester City beið hann eftir Hobinger. Öryggisfulltrúinn tók eftir því og lét öryggisgæsluna vita á meðan Hobinger var fylgt heim. Dalal játaði þá að hann væri eltihrellir Hobinger. Hobinger segir þetta hafa haft mikil áhrif á sín störf sem leikmaður Liverpool, hún hafi átt erfitt með einbeita sér að leikjum og sífellt verið stressuð þegar hún sá myndavélar á lofti í stúkunni, því hún gat aldrei verið viss um hver væri að taka myndir af henni eða af hverju.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Enski boltinn Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Fleiri fréttir Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira