„Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. janúar 2026 10:30 Þær Anahita og Elissa ræða við Katrínu Oddsdóttur verjenda sinn í héraðsdómi í morgun. Vísir/Anton Brink Aðalmeðferð hófst í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli hvalveiðimótmælendanna Anahitu Babaei og Elissu Bijou sem hlekkjuðu sig við tunnur Hvals 8 og Hvals 9 í 33 klukkustundir árið 2023. Þær segjast tilbúnar til að standa á sínu í réttarsal og segja heiminn standa með sér.
Ákæran var þingfest í júní á síðasta ári. Þær Anahita og Elissa urðu landsfrægar í september 2023 þegar þær komu sér fyrir í tunnum hvalskipanna tveggja í skjóli nætur, í því skyni að koma í veg fyrir að bátarnir kæmust úr höfn. Þær eru ákærðar fyrir húsbrot og fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Tilbúnar Fréttastofa náði tali af tvíeykinu áður en aðalmeðferð hófst í morgun. Þær segjast tilbúnar til að standa á sínu. „Við erum tilbúnar. Tilbúnar til að standa andspænis dómaranum,“ segir Elissa. Anahita segir það skrítið að þurfa að verja sinn rétt til tjáningarfrelsis. „Eftir alla þessa bið höfum við getað aflað fleiri gagna sem sýna fram á hvernig þessi aðgerð er brot á svo mörgum alþjóðalögum. Við erum með lögin okkar megin í þessu máli, meirihluti Íslendinga styður okkur, meirihluti heimsbyggðarinnar styður okkur, vísindin líka, þannig við erum mjög öruggar.“ Elissa segir biðina hafa verið langa eftir málaferlunum. Tvö og hálft ár. „Sama hvernig þetta fer gefur þetta okkur tækifæri til að verja hvalina, þar sem þeir geta ekki verið hér. Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir,“ segir Anahita.
Mótmæli í tunnum Hvals 8 og 9 Hvalveiðar Dómsmál Tengdar fréttir Falla frá hluta ákæru vegna tunnumótmælanna Ákæruvaldið hefur ákveðið að falla frá þeim hluta ákæru á hendur Anahitu Babaei og Elissu May Philipps sem varðar brot gegn lögum um siglingavernd vegna hvalveiðimótmælanna í september 2023. 1. september 2025 16:16 Heimurinn undrist villimennsku Íslendinga Ákæra á hendur Anahitu Sabaei og Elissu Bijou verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan tíu í fyrramálið en þær eru ákærðar fyrir að hafa hlekkjað sig við mastur hvalskipa í mótmælaskyni, fyrir tæpum tveimur árum síðan. Þær segjast hluti af íslenskri hreyfingu með langa sögu að baki sér og að málið snúist um rétt borgara til friðsamlegra mótmæla. 4. júní 2025 11:55 Ákærðar tveimur árum eftir tunnumótmælin Á morgun verður þingfest ákæra í héraðsdómi Reykjavíkur gegn Anahitu Babaei og Elissu Bijou fyrir að hafa hlekkjað sig við tunnur Hvals 8 og Hvals 9 og setið þar sem fastast í mótmælaskyni þar til lögregla skarst í leikinn. Lögmenn kvennanna segja grundvallarreglur um meðalhóf og jafnræði hafa lotið í lægra haldi fyrir refsistefnu sem vegur að grunnstoðum réttarríkisins. 4. júní 2025 08:47 Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Sjá meira
Falla frá hluta ákæru vegna tunnumótmælanna Ákæruvaldið hefur ákveðið að falla frá þeim hluta ákæru á hendur Anahitu Babaei og Elissu May Philipps sem varðar brot gegn lögum um siglingavernd vegna hvalveiðimótmælanna í september 2023. 1. september 2025 16:16
Heimurinn undrist villimennsku Íslendinga Ákæra á hendur Anahitu Sabaei og Elissu Bijou verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan tíu í fyrramálið en þær eru ákærðar fyrir að hafa hlekkjað sig við mastur hvalskipa í mótmælaskyni, fyrir tæpum tveimur árum síðan. Þær segjast hluti af íslenskri hreyfingu með langa sögu að baki sér og að málið snúist um rétt borgara til friðsamlegra mótmæla. 4. júní 2025 11:55
Ákærðar tveimur árum eftir tunnumótmælin Á morgun verður þingfest ákæra í héraðsdómi Reykjavíkur gegn Anahitu Babaei og Elissu Bijou fyrir að hafa hlekkjað sig við tunnur Hvals 8 og Hvals 9 og setið þar sem fastast í mótmælaskyni þar til lögregla skarst í leikinn. Lögmenn kvennanna segja grundvallarreglur um meðalhóf og jafnræði hafa lotið í lægra haldi fyrir refsistefnu sem vegur að grunnstoðum réttarríkisins. 4. júní 2025 08:47