Körfuboltakvöld: Betra að temja villtan leikmann en að vera með einhverja rolu Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. janúar 2026 12:01 Khalil Shabazz ætti að vera áfram í Grindavík að mati Sævars, þó hann sé stundum svolítið villtur. vísir / sýn skjáskot Í annað sinn á tímabilinu tapaði Grindavík í gærkvöldi, og gerði það með sannfærandi hætti. Félagaskiptaglugginn fer að loka og Körfuboltakvöld velti því fyrir sér hvort liðið ætti að losa Khalil Shabazz og fá nýjan Bandaríkjamann í hans stað. „
Stundum hafa heyrst raddir úr Grindavík, sem segja að Khalil Shabazz sé ekki alveg málið“ sagði þáttastjórnandinn Stefán Árni Pálsson. „Við erum búnir að heyra þetta bara nánast frá því að hann kom í Grindavík“ svaraði Benedikt Guðmundsson úr sérfræðingastólnum. „Hann á sína haters, það er alveg klárt mál, en ef ég væri þjálfari Grindavíkur myndi ég ekki þora því að skipta honum út. Liðinu er búið að ganga vel með hann. Auðvitað hefur spilamennskan ekki alltaf verið sannfærandi en að fara á þennan markað og taka sénsinn… …Segjum að þeir kasti teningunum og taki áhættuna, það eru alveg góðar líkur á því að þú fáir bara verri leikmann. Kannski með flottan prófíl en hann getur verið ekki í leikformi eða annað, það er alltaf áhætta að taka menn inn þegar svona langt er liðið á tímabilið“ bætti Benedikt við. Sævar Sævarsson tók undir úr hinum sérfræðingastólnum og sagði ósniðugt að skipta Shabazz út. „Hann er svolítið villtur en ég held að það sé miklu betra að vera með leikmann sem er smá villtur og temja það svo þegar þú kemur í úrslitakeppnina. Frekar en að vera með einhverju rolu sem þú nærð einhvern veginn aldrei að kveikja á.“ Klippa: Ætti Grindavík að skipta Shabazz út? Umræðuna úr Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum að ofan.
Bónus-deild karla Körfuboltakvöld UMF Grindavík Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Hetjuleg barátta en þriggja marka tap í fyrsta Evrópuleik Ísfirðinga Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Mbappé bætti fyrir vítaklúðrið og Frakkar brunuðu í undanúrslitin Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Fótbolti Fleiri fréttir Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Sjá meira