Þegar „erlend afskipti“ eru aðeins vandamál ef þau þjóna náttúrunni Arndís Kristjánsdóttir skrifar 29. janúar 2026 12:02 Vel á þriðja þúsund umsagnir bárust í samráðsgátt vegna lagereldisfrumvarpsins, þar af stór hluti erlendis frá. Atvinnuvegaráðherra Íslands reynir nú að gera þann áhuga aðalatriði í umræðunni um meingölluð frumvarpsdrögin; ekki frumvarpið sjálft, ekki fullkominn skort á dýravelferð og alls ekki þann aukna skaða fyrir lífríki fjarða og villta laxastofna okkar sem þessi frumvarpsdrög munu valda ef þau verða að lögum. Jörðin eini hluthafinn Ástæðan er einföld. Patagonia hvatti fólk til að skila inn staðlaðri umsögn. Um er að ræða útivistavörufyrirtæki sem hefur styrkt umhverfismál um allan heim í áratugi og hefur enga beina eða fjárhagslega hagsmuni af laxeldi á Íslandi. Fyrirtæki sem starfar samkvæmt yfirlýstu markmiði um að vernda jörðina og var í því skyni sett í nýtt eignarhald þegar stofnandinn, Yvon Chouinard, framseldi það til náttúruverndarsjóða. Samkvæmt honum er jörðin eini hluthafi Patagonia og tilgangur félagsins sá einn að vernda jörðina. Í dag rennur því allur hagnaður til verndar náttúru og loftslagi jarðar. Yvon var árið 2023 talinn meðal 100 áhrifamestu einstaklinga heims af Time Magazine fyrir að ganga gegn hefðbundinni hugsun um eignarhald og gróða og setja vernd jarðar ofar eigin auð og völdum. Maður gæti ætlað að slík afstaða, þar sem vernd jarðar er sett ofar gróða, væri tekin sem ábending um ábyrgð og alvöru. En það var ekki sú leið sem stjórnvöld völdu. Þvert á móti varaði Hanna Katrín Friðriksdóttir, atvinnuvegaráðherra við því í Kastljósi í vikunni að „erlend stórfyrirtæki“ væru að hafa áhrif á íslenska löggjöf og líkti því við afskipti af varnarmálum Íslands. Sá samanburður stenst enga skoðun. Hverjir hafa raunverulega hagsmuni? Á meðan athyglinni er beint að Patagonia, vill ráðherrann ekki ræða um hina raunverulegu risa í þessu máli, norsk laxeldisfyrirtæki skráð í kauphöllinni í Ósló, með milljarðahagsmuni af því að sjókvíaeldi fái áframhaldandi starfsleyfi á Íslandi – og vaxi. Fyrirtæki sem : hafa beina og augljósa fjárhagslega hagsmuni af frumvarpinu, byggja rekstur sinn á ódýrustu og áhættusömustu tækni sem völ er á, hafa beitt markvissri og öflugri hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum frá upphafi starfa í greinum þar sem dýravelferð, mengun og erfðablöndun eru vel skjalfest vandamál. Inngreypt ítök Lagereldisfrumvarpið ber mörg augljós merki um gríðarleg ítök laxeldisiðnaðarins innan ráðuneytisins. Nýtt ákvæði um svokallaðan laxahlut, í reynd kvótakerfi í sjókvíaeldi, er gott dæmi um þetta. Þótt heimildirnar séu formlega bundnar við 16 ár eru þær framseljanlegar og veðsetjanlegar og því fela þær í sér mun varanlegri réttindi en tímamörkin gefa til kynna. Ef tala á um lýðræðislega hættu, þá hlýtur hún því að liggja þar. Ekki hjá þeim sem vara við afleiðingunum, heldur hjá þeim sem hafa mest að græða á því að þær séu hunsaðar. Erlendu áhrifin eru því, kæra Hanna, ekki í umsögnum. Þau eru í frumvarpinu. Og orðræða um „erlend afskipti“ er hrein og klár afvegaleiðing. Hún þjónar því eina markmiði að gera baráttu fyrir náttúruvernd tortryggilega, á meðan gæslumenn erlendra gróða hagsmuna fá að vinna sitt starf í friði. Þversögnin mikla Það er sérstök þversögn að þessi málflutningur skuli koma frá fulltrúa Viðreisnar, flokks sem hefur um árabil barist fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þar yrði löggjafarvald sannarlega flutt úr landi með formlegum og bindandi hætti. Samt eru það umsagnir erlendra náttúruverndarsinna sem Hanna og félagar hennar í Viðreisn telja að ógni lýðræðinu. Umhverfismál þekkja ekki landamæri Ef einhver málaflokkur í heiminum er ekki bundinn landamærum, þá eru það umhverfismál. Mengun, vistkerfishrun og útrýming tegunda stöðvast ekki við landhelgi ríkja. Raunverulega spurningin er ekki því hvort erlendir aðilar hafi sent inn umsagnir. Hún er, hvers vegna eru umhverfisverndarsinnar skilgreindir sem ógn við lýðræðið, en erlendir gróðahagsmunir taldir eðlilegir þátttakendur í lagasetningu? Þar liggur kjarni málsins. Höfundur er lögfræðingur og umhverfisverndarsinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjókvíaeldi Fiskeldi Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar