Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 1. febrúar 2026 13:04 Dagur kvenfélagskonunnar er haldinn hátíðlegur í dag 1. febrúar, um allt land en tilgangur dagsins er meðal annars að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna. Aðsend Dagur kvenfélagskonunnar er haldinn hátíðlegur í dag 1. febrúar um allt land en tilgangur dagsins er meðal annars að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna.
1. febrúar er Dagur kvenfélagskonunnar en dagurinn, sem er stofndagur Kvenfélagasambands Íslands 1930 var formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar árið 2010 til að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna í 140 ár. Það var enda löngu tímabært að kvenfélagskonur fengju sinn eigin dag á dagatalinu. Dagurinn hefur fest sig í sessi undanfarin ár og er hans nú getið á fjölmörgum dagatölum og í dagbókum. Sólveig Þórðardóttir er formaður Sambands sunnlenskra kvenna(SSK) og þekkir því vel til kvenfélagsdagsins. „Ég veit að það eru margir að gera eitthvað sérstakt í tilefni dagsins. Það er reyndar hjá okkur í SSK að við verðum með 5. febrúar baðstofukvöld, sem verður haldið í Þorlákshöfn, kvenfélag Þorlákshafnar og kvenfélagið Bergþóra í Ölfusi halda baðstofukvöld fyrir kvenfélagskonur þá,” segir Sólveig. En er ekki frábært að eiga einn svona dag á ári, Dagur kvenfélagskonunnar? „Jú, veistu þetta er rosalega gott í hjartað og líka þegar maður fer að heyra á Degi kvenfélagskonunnar kveðjur frá sveitarfélögum og alls konar fyrirtækjum að óska okkur til hamingju. Við náttúrulega stækkum bara um mörg númer og erum ótrúlega stoltar af því að það skulu svona margir taka eftir okkar verkum,” segir Sólveig. Sólveig Þórðardóttir, sem er formaður Sambands sunnlenskra kvennaAðsend En hvernig gengur að fá ungar konur inn í kvenfélögin? „Já, það er áskorun en það hefur svo sem ekkert gengið rosalega vel hjá okkur. Jú, sum kvenfélög eru mjög dugleg eins og á Vestfjörðum eru mjög ungar stúlkur, bara ungar konu í kvenfélögunum þar og þetta er svona að koma. Mér finnst að það sé að koma aðeins meðbyr aftur með kvenfélögunum þannig að við erum orðnar pínu gamlar þó við séum allar ungar en það er svona farið að endurnýjast,” segir formaður Sambands sunnlenskra kvenna. Kvenfélagskonur láta víða til sín taka í samfélaginu eins og allir þekkja.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Félagasamtök Félagsmál Jafnréttismál Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Fleiri fréttir Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Sjá meira