Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tómas Arnar Þorláksson skrifar 3. febrúar 2026 23:01 Kristín Amalía, hagfræðingur hjá HMS. vísir/bjarni Mikilvægt er að aðlaga húsnæðisuppbyggingu næstu ára að öldrun þjóðarinnar sem mun skila fleiri einstæðingum á húsnæðismarkað að mati hagfræðings HMS. Framkvæmdastjóri Arnarhvols segir skipulagsmál geta valdið því að uppbygging taki allt í allt 50 ár.
Samtök iðnaðarins og VR stóðu fyrir sameiginlegum fundi um úrbætur í húsnæðismálum í dag þar sem ýmsir aðilar kölluðu eftir samstöðu um úrbætur enda sé um eitt stærsta úrlausnarefni samfélagsins að ræða og mikilvægt að mynda langtímasýn. Kristín Amalía Líndal, hagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, var ein þeirra sem héldu erindi á fundinum. Hún segir kólnun á fasteignamarkaði. „Þeir hafa flestir verið þeirrar skoðunar að virkni sé frekar lítil miðað við árstíma. Þeir telja að markaðinum megi lýsa sem kaupendamarkaði. Við myndum segja að þetta væri svona hægfara kólnun og við erum búin að sjá íbúðarverð lækka að raunvirði núna undanfarna mánuði.“ Svo virðist sem að fasteignamarkaður sé að ná jafnvægi eftir mikla óvissu undir lok síðasta árs „Áhrif af vaxtadómnum, þessum fyrsta sem hafði áhrif á fasteignamarkaðinn. Áhrifin af honum eru tímabundin og eru að mestu komin fram, hvað varðar umsvif og fjölda kaupsamninga.“ Hún segir ljóst að aðlaga þurfi húsnæðisuppbyggingu næstu ára að öldrun þjóðarinnar. „Eldri þjóð þarf öðruvísi húsnæði en yngri þjóð, eins og hagstofan er að spá núna. Lægri fæðingartíðni leiðir af sér minni fjölskyldustærðir og það má gera ráð fyrir fleiri einmenningsheimilum í framtíðinni. Það má alveg velta því fyrir sér hvort það þurfi þá að leggja áherslu á uppbyggingu minni íbúða til að mæta þeirri þörf.“ Karl Þráinsson, framkvæmdarstjóri Framkvæmdafélagsins Arnarhvol.vísir/bjarni. Karl Þráinsson, framkvæmdastjóri Arnarhvols, fræddi viðstadda um hvað tefji framkvæmdir. Hann nefndi sem dæmi uppbyggingu Blikastaðalands. „Land sem ég tengdist í minni fyrri vinnu í kringum aldamót 1995 og það er sem betur fer að klárast í skipulagi núna. Þar hefur málið svolítðið snúist um deilur á milli þeirra sem halda á landinu og sveitarfélaga landsins. 30 árum eftir að menn keyptu landið er loksins komið skipulag og þá mun örugglega taka tuttugu ár rúmlega að byggja það.“
Húsnæðismál Eldri borgarar Fasteignamarkaður Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Sjá meira