Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. febrúar 2026 07:02 Margrét Jónsdóttir Njarðvík er rektor Háskólans á Bifröst. Vísir/Sara Starfsmenn Háskólans á Bifröst segja allt loga stafnana á milli í skólanum; starfsumhverfið sé þrúgandi og réttlætiskennd fólks misboðið. Nokkrir hafa stigið fram á samfélagsmiðlum og tjáð sig um stöðu mála eftir að Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor háskólans, greindi frá því í tölvupósti í gær að mál sem nú er til meðferðar hefði hafist með ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar.
Félag akademískra starfsmanna Háskólans á Bifröst lýsti yfir vantrausti á rektorinn og aðra stjórnendur á dögunum, vegna framgöngu þeirra gagnvart þremur starfsmönnum, hverra málum var vísað til siðanefndar skólans eftir athugun á verkum þeirra sem fór meðal annars fram með aðstoð gervigreindar. Í tölvupóstinum sem Margrét sendi frá sér í gær sagði hún að í kjölfar ábendingarinnar um möguleg óheilindi starfsmannanna hefði hún falið deildarforseta viðskiptadeildar og rannsóknarstjóra að kanna málið. Þau hefðu virt þagnarskyldu og stjórnendur gætu ekki tjáð sig um málið fyrr en siðanefnd hefði skilað niðurstöðu. Anna Hildur Hildibrandsdóttir lektor er meðal þeirra sem tjáðu sig um málið á Facebook í gær og gagnrýnir meðal annars að starfsmönnunum þremur sem sakaðir voru um brot gegn höfundarrétti hafi ekki verið gefið tækifæri til að svara hinni nafnlausu ábendingu. „Margt fleira við ferlið hefur vakið spurningar en það kvisaðist jafnframt út að við sem sinnum rannsóknum og skrifum fræðigreinar gætum átt von á handahófskenndum úttektum sem þessum og það yrði liður í gæðastarfi skólans. Þannig er blandað saman siðanefndarmálum og gæðastarfi og hugsanlega mannauðsmálum sem er alls kostar ólíðandi,“ segir Anna Hildur. Þá segir hún tal um „ábendingu“ hljóma sakleysislega en í kjölfarið fari í gang afar íþyngjandi ferli þar sem fólk sé allt í einu í þeirri stöðu að þurfa að sanna sakleysi sitt. Anna Hildur Hildibrandsdóttir er fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst.Bifröst „Starfsumhverfið er þrúgandi við svona aðstæður og réttlætiskennd fólks er misboðið,“ segir Anna Hildur. „Við erum mörg sem höfum átt svefnlausar nætur yfir því sem góðir kollegar okkar hafa þurft að þola og verið verulega hugsi yfir því hvert þetta allt leiðir. Þrátt fyrir þetta gerir akademískt starfsfólk, ásamt fólkinu sem vinnur í stoðkerfinu, allt sem í þeirra valdi stendur til að halda uppi fagmennsku og tryggja að ástandið bitni ekki á nemendum. En þetta er hvorki eðlilegt né ásættanlegt vinnuumhverfi til lengdar.“ „Eftir situr skóli í sárum“ „Það er gott að hafa völdin, geta stjórnað frásögninni, sama hvort hún er rétt eða röng. Mörg misgóð fordæmi fyrir því í samtímanum. Við sem starfsmenn fáum ekki einu sinni leyfi til að tjá okkur um málið á starfsmannafundi. Enda er það svolítið þannig á þessum vinnustað að þeir sem hafa talað sínu máli hafa verið látnir fara. Ætli ég verði ekki næst?“ spyr Andrea Guðmundsdóttir aðjúnkt á Facebook. Andrea Guðmundsdóttir aðjúnkt.Bifröst Andrea sakar Margréti um aðför gegn ákveðnum kennurum Bifrastar og segir málið raunar aðeins toppinn á ísjakanum, sem hafi komið í ljós þegar málið rataði í fjölmiðla og „veggir milli deilda“ fóru að opnast. Segir hún fyrrverandi starfsmenn meðal annars hafa stigið fram og greint frá ýmsum „sökum“ sem hafi leitt til starfsloka. „En við eigum erfitt með að stjórna frásögninni á meðan her rektors vinnur á bakvið tjöldin við að rýra réttmæti okkar, meðal annars við nemendur. Eitt er þó víst að við erum hér til að þjóna okkar nemendum. Það er vegna þeirra, samstarfsfólks míns og deildarforseta Félagsvísindadeildar að ég er hérna ennþá í dag. En ég læt ekki bjóða mér hvað sem er og því hef ég í rauninni engu að tapa við að skrifa þetta. Ég sé ekki fyrir mér að starfa lengur undir þessum stjórnarháttum,“ segir Andrea. Sigrún Lilja Einarsdóttir prófessor segir ástandið í skólanum hryggja sig meira en orð fá lýst. Vísar hún í Sonatorrek; „Mjög erum tregt tungu að hræra“. „Hér hafa afdrifarík mistök verið gerð og ekki er fyrirséð hverjar afleiðingar þeirra eru og/eða verða í náinni framtíð. Eftir situr skóli í sárum og samfélag núverandi og fyrrverandi nemenda sem ekki vita almennilega hvað snýr upp eða niður. Það er óásættanleg staða. Mig skortir orð til að lýsa því hvernig mér raunverulega líður, að allt logi stafnanna á milli á vinnustað þar sem ég hef marga fjöruna sopið við úrlausn margvíslegra áskorana og viðfangsefna. Sárust er þó sú vissa að þetta hefði ekki þurft að fara svona – bara ef það hefði verið hlustað.“ Endanlega búinn að fá nóg af þessu „bullshit“ Einar Svansson prófessor ávarpar Margréti beint á Facebook og segist vera búinn að fá nóg af bulli. Honum hafi þótt vænt um hana en hún hafi núna farið yfir strikið, misboðið réttlætiskennd hans og skynsemi. „Ég byrjaði á Bifröst sama mánuð og Runólfur fyrrum rektor hélt varnarræðu sína í myglulausri Hriflu, ég hef tekið þátt í ákvörðunum sem hafa gefið Bifröst líf sem nú er í andaslitrunum vegna þess að þú tekur eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni skólans, það varð endanlega ljóst í dag með þessum dæmalausa fréttaflutningi af „ábendingu“ sem er alltaf kæra ef málið fer í ferli samkvæmt reglum skólans, þetta kallaði Orwell „new speak“ í hinni frægu skáldsögu 1984, þú ert doktor í bókmenntum, veist hvað ég meina,“ segir Einar Svanur. Einar Svansson dósent.Bifröst Hann segir Bifröst nú standa í stormi sem Margrét skapaði sjálf og það muni ganga af skólanum dauðum ef hún stígur ekki til hliðar. „Andlegu ástandi starfsmanna fer hrakandi með hverjum deginum sem líður, ég hef hitt bæði stjórnendur sem eru grátklökkir og heyrt af starfsmönnum sem bresta í grát og þora varla að mæta í vinnuna. Þetta er óboðlegt ástand fyrir okkur öll, mér er alveg sama um mig sjálfan, annaðhvort verður þessi póstur til allra starfsmanna síðasti naglinn í mína líkkistu en vonandi frekar ef skólinn lifir er tilgangnum náð, ég er til í að fórna mér fyrir framtíð Bifrastar, það er enginn starfsmaður mikilvægari en okkar Bifröst, hvorki þú eða ég.“
Háskólar Skóla- og menntamál Deilur í Háskólanum á Bifröst Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Sjá meira