Innherji

Óttast sam­drátt og at­vinnu­leysi sem ekki sé hægt að mæta með vaxtalækkun

Hörður Ægisson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir mjög erfitt fyrir peningastefnunefndina að stíga frekari skref í átt að vaxtalækkunum þegar verðbólga er yfir fjórum prósentum.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir mjög erfitt fyrir peningastefnunefndina að stíga frekari skref í átt að vaxtalækkunum þegar verðbólga er yfir fjórum prósentum. Vísir/Vilhelm

Miðað við dekkri verðbólguspá til skamms tíma þá kallar hún „alls ekki“ á vaxtalækkun í bráð, að sögn seðlabankastjóra, sem varar við því að mögulega sé að teiknast upp sú staða að hagkerfið kunni að sigla í samdrátt og aukið atvinnuleysi sem ekki verði hægt að mæta með því að ráðast í lækkun vaxta. Seðlabankinn hefur ekki fengið neina kynningu á hugmyndum stjórnvalda um skref til afnáms verðtryggingar, meðal annars að gera kröfu um lágmarksafborgun inn á lán, og telur að slíkar aðgerðir ættu fremur að vera á borði fjármálastöðugleikanefndar.


Tengdar fréttir

Vöxtum haldið óbreyttum og spennan í þjóðar­búinu er „horfin“

Þrátt fyrir aukningu í verðbólgu að undanförnu þá er hún talin vera tímabundin og því hafa verðbólguhorfur til lengri tíma lítið breyst, að sögn peningastefnunefndar Seðlabankans, sem heldur vöxtum óbreyttum í samræmi við væntingar flestra hagfræðinga. Samkvæmt nýrri spá er spennan í þjóðarbúinu horfin en samt útlit fyrir lítillega meiri hagvöxt í ár en áður var talið.

Hlé á vaxtalækkunarferlinu þar til skýr merki um verðbólgu­hjöðnun birtast

Mikil aukning verðbólgunnar að undanförnu, einkum vegna hækkunar bifreiðaverðs í kjölfar vörugjaldabreytinga, kallar á hlé á vaxtalækkunarferlinu þar frekari vísbendingar um hjöðnun fara að birtast, að sögn aðalhagfræðings Kviku. Verðbólgumælingin í janúar setur peningastefnunefnd í óþægilega stöðu en verðhækkanir á fremur breiðum grunni staðfesta sumpart áhyggjur hennar af kostnaðarþrýstingi af völdum mikilla launahækkana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×