Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sindri Sverrisson skrifar 6. febrúar 2026 13:31 Jose Sa gæti gert tilkall til sætis í Fantasy-liðum þó að hann sé með Wolves á botni úrvalsdeildarinnar. Getty/Robbie Jay Barratt Nú er orðið ljóst að tvö lið, Arsenal og Wolves, munu spila tvo leiki í leikviku 26 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Það er eitthvað sem Fantasy-spilarar þurfa að hafa í huga.
Í nýjasta þætti Fantasýn hlaðvarpsins var farið yfir þessi mál og menn vissulega hvattir til að hafa þrjá Arsenal-menn í sínu liði. En Albert Þór Guðmundsson gekk lengra og hvatti fólk til að skoða mögulega demanta í botnliði Wolves, eins og heyra má eftir um 45 mínútur í þættinum hér að neðan. Eftir leikina núna um helgina mun Arsenal í leikviku 26 spila við Brentford og Wolves. Úlfarnir spila að sama skapi við Arsenal en fyrst við Nottingham Forest. „Ég held að flestir séu þá bara að horfa á að fylla liðið sitt af Arsenal-mönnum,“ sagði Albert. „En núna er ég að hugsa að kannski væri einn punktur að taka ekki David Raya heldur lauma inn markmanninum hjá Wolves. Hann gæti alveg sótt vörslur. Eða Mane í Wolves, og henda honum svo á bekkinn,“ sagði Albert. Hafa má í huga að Wolves eru aðeins með 8 stig á botni deildarinnar, hafa unnið 1 leik og eru með -30 í markatölu. Og að átján ára framherjinn Mateus Mané hefur skorað tvö mörk á tímabilinu. „Nú held ég að allir séu að velta fyrir sér hvort þú sért að tala í alvörunni,“ sagði Sindri Kamban, greinilega viss um að það kostirnir sem heilla Albert væru í raun úlfar í sauðagæru sem myndu valda skaða. „Þetta er double gameweek. Þú byrjar með fjögur stig, ef þú spilar báða leikina,“ sagði Albert og virtist fúlasta alvara. „En eru ekki talsvert miklar líkur á að þú fáir bara fjögur stig?“ sagði Sindri. „Nei, nei. Ég myndi alveg íhuga það ef menn geta skipt út ódýrum sóknarmanni, og eru með þrjá Arsenal-menn, að taka inn Mane. Það er ekkert að því.“ „Ég myndi segja að þetta sé framsækin nálgun,“ sagði Sindri. Albert dró svo aðeins í land en hvatti fólk þó til að skoða það sérstaklega að setja Jose Sa í markið, fyrir aðeins 4,2 milljónir, og vera þá með þrjá útileikmenn Arsenal í sínu liði.
Enski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira