Tíminn líður hratt á gervihnattaröld Alexandra Rós Jóhannesdóttir skrifar 6. febrúar 2026 11:31 Í nútíma tækniveröld er oft erfitt að vita í hvorn fótinn á að stíga og hvar mörk liggja með snjallsímanotkun. Frá 10. desember sl. hefur Ástralía sett lög sem banna einstaklingum yngri en 16 ára að stofna eða viðhalda samfélagsmiðlareikningum, með því markmiði að auka netöryggi barna. Frumkvæði sem ástralar eru að sýna hér í verki ætti að verða hávegum höfð og til að framfylgja þessu þá geta fyrirtæki sem brjóta þessi lög átt yfir höfði sér allt að 50 milljón dala sekt. Hér er verið að leggja ábyrgð á samfélagsmiðlafyrirtæki að framfylgja aldurstakmörkum sem að gerir það að verkum að foreldrar geta betur unnið saman að því að vera með skýrari reglur og viðmið þar sem allir eru á sömu blaðsíðu.Öll verðum við að standa saman í að vernda börn gegn skaða af völdum samfélagsmiðla þar sem neteinelti og óviðeigandi skaðlegt efni er aðgengilegt og á allra færi. Ljóst er að framheili þeirra er ekki fullþroskaður og þau ráða ekki við streymisveitur að þessu tagi. Geðheilsa og vellíðan barna- og unglinga á að vera forgangsmál og ríkið á að leggja kraft í að leggja lög sem vernda börnin okkar en ábyrgð okkar foreldra er að standa saman með skýrar takmarkanir og sýn á hvernig við viljum að börnin okkar alist upp. Þetta snýst ekki um að vera fullkomin heldur að vera meðvitaður um að gera sitt besta og standa saman. Þess vegna skora ég á þingið að koma lögum að svipuðu tagi í gegn fyrir ungmennin í landinu og framtíðina. Höfundur er aðalmaður í sveitastjórn í Hrunamannahreppi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Símanotkun barna Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Sjá meira
Í nútíma tækniveröld er oft erfitt að vita í hvorn fótinn á að stíga og hvar mörk liggja með snjallsímanotkun. Frá 10. desember sl. hefur Ástralía sett lög sem banna einstaklingum yngri en 16 ára að stofna eða viðhalda samfélagsmiðlareikningum, með því markmiði að auka netöryggi barna. Frumkvæði sem ástralar eru að sýna hér í verki ætti að verða hávegum höfð og til að framfylgja þessu þá geta fyrirtæki sem brjóta þessi lög átt yfir höfði sér allt að 50 milljón dala sekt. Hér er verið að leggja ábyrgð á samfélagsmiðlafyrirtæki að framfylgja aldurstakmörkum sem að gerir það að verkum að foreldrar geta betur unnið saman að því að vera með skýrari reglur og viðmið þar sem allir eru á sömu blaðsíðu.Öll verðum við að standa saman í að vernda börn gegn skaða af völdum samfélagsmiðla þar sem neteinelti og óviðeigandi skaðlegt efni er aðgengilegt og á allra færi. Ljóst er að framheili þeirra er ekki fullþroskaður og þau ráða ekki við streymisveitur að þessu tagi. Geðheilsa og vellíðan barna- og unglinga á að vera forgangsmál og ríkið á að leggja kraft í að leggja lög sem vernda börnin okkar en ábyrgð okkar foreldra er að standa saman með skýrar takmarkanir og sýn á hvernig við viljum að börnin okkar alist upp. Þetta snýst ekki um að vera fullkomin heldur að vera meðvitaður um að gera sitt besta og standa saman. Þess vegna skora ég á þingið að koma lögum að svipuðu tagi í gegn fyrir ungmennin í landinu og framtíðina. Höfundur er aðalmaður í sveitastjórn í Hrunamannahreppi.
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar