Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Samúel Karl Ólason skrifar 6. febrúar 2026 16:04 Bandaríkjaforseti deildi í gærkvöldi myndbandi þar sem Barack Obama, fyrrverandi forseta, og Michelle eiginkonu hans var líkt við apa. Þetta er skjáskot úr upprunalega myndbandinu. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, birti í gærkvöldi myndband þar sem andlit þeirra Baracks og Michelle Obama höfðu verið sett á líkama apa. Birtingin hefur vakið mikla gagnrýni og þá meðal annars frá þingmönnum Repúblikanaflokksins. Talskona Trumps segir myndbandið ekki rasískt og að blaðamenn eigi að hætta að gera sér upp hneykslan og einbeita sér að hlutum sem skipta máli.
Að líkja þeldökku fólki við apa er algengt tungutak og myndmál rasista. Myndbandið birti Trump á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli. Hann var þá að deila aragrúa færsla um að umfangsmikið kosningasvindl hefði kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020, sem er rangt. Sjá einnig: Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Umrætt myndband snerist um samsæriskenningu um að átt hefði verið við kosningavélar í kosningunum í nokkrum mikilvægum ríkjum. Undir lok myndbandsins má sjá stutt skot af forsetahjónunum fyrrverandi sem apar. Sá myndbútur er tekinn úr öðru myndbandi sem birt var á X í fyrra. Það var búið til með gervigreind og sýnir þekkta Demókrata sem dýr og Trump sem ljón, eða konung frumskógarins. Sagði Obama lengi ekki raunverulegan Bandaríkjamann Trump á sér langa sögu niðrandi og stundum rasískra ummæla og hann hefur ítrekað verið mjög harðorður í garð Obama-hjónanna. Þekktasta dæmið er líklega það að þegar Obama var forseti staðhæfði Trump ítrekað að hann væri ekki raunverulegur Bandaríkjamaður og laug því að Obama hefði fæðst í Kenía. Þess vegna væri hann ekki gjaldgengur sem forseti Bandaríkjanna. Trump krafðist þess lengi að Obama opinberaði fæðingarvottorð sitt, sem hann gerði á endanum. Eftir það laug Trump því að það hefði verið Hillary Clinton en ekki hann sem hefði byrjað umræðuna um það að Obama væri ekki raunverulegur Bandaríkjamaður. Karoline Leavitt, talskona Trumps, hefur hafnað gagnrýni um að myndbirting Trumps sé rasísk. „Þetta er úr netgríni þar sem Trump er líkt við konung frumskógarins og Demókrötum líkt við önnur dýr úr Konungi ljónanna,“ sagði hún samkvæmt AP fréttaveitunni. „Gerið það, hættið þessari fölsku hneykslan og fjallið um eitthvað sem skiptir almenning í Bandaríkjunum máli.“ Sjaldgæf gagnrýni frá Repbúlikönum, þó flestir þykist ekkert hafa séð Í samtölum við blaðamenn í dag hafa flestir Repúblikanar sagt að þeir hafi ekki séð myndbandið og geti því ekki tjáð sig um það. Nokkrir þeirra hafa þó gagnrýnt Trump fyrir myndefnið og sagt að hann ætti að eyða færslunni. Öldungadeildarþingmaðurinn Tim Scott er einn þeirra Repúblikana sem hafa gagnrýnt Trump. Hann sagðist hafa vonast til þess þegar hann sá fyrst umræðuna um færslu forsetans að hún væri fölsuð. Það væri vegna þess að þetta væri „það rasískasta sem hann hefði séð frá þessu Hvíta húsi“. Þá kallaði hann eftir því að Trump fjarlægði færsluna. Praying it was fake because it’s the most racist thing I’ve seen out of this White House. The President should remove it. https://t.co/gADoM13ssZ— Tim Scott (@votetimscott) February 6, 2026 Þingmaðurinn Mike Lawler sló á svipaða strengi og sagði færsluna bæði ranga og „ótrúlega móðgandi“, hvort sem hún hefði verið birt fyrir mistök eða ekki. Hann sagði Trump eiga að eyða færslunni og biðjast afsökunar. The President’s post is wrong and incredibly offensive — whether intentional or a mistake — and should be deleted immediately with an apology offered.— Mike Lawler (@lawler4ny) February 6, 2026
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Barack Obama Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Sjá meira